Innlent

Aðeins fimm daga bið eftir greiningu hjá Krabbameinsfélaginu

Sveinn Arnarsson skrifar
Ekki er bið á því að komast í greiningu hjá Krabbameinsfélaginu.
Ekki er bið á því að komast í greiningu hjá Krabbameinsfélaginu.
Aðeins fimm daga tekur að lesa úr röntgenmyndum í skimun fyrir brjóstakrabbameini. Framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins segir það í takt við evrópskar leiðbeiningar þar um.

Á forsíðu Fréttablaðsins á mánudag var fjallað um skort á röntgenlæknum við skimun eftir brjóstakrabbameinum. Eftir umfjöllun blaðsins bárust Krabbameinsfélaginu ábendingar um að skilja mætti greinina svo að vegna skorts á læknum væru tafir á myndgreiningu, það er úrlestri röntgenmynda eftir skimun fyrir brjóstakrabbameini.

„Rétt er að árétta að svo er alls ekki heldur liggja niðurstöður röntgenmynda sem teknar eru við skimanir fyrir brjóstakrabbameini að jafnaði fyrir innan fimm daga frá því að skimun fer fram,“ segir Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags Íslands. „Ef niðurstöður röntgenmynda benda til að eitthvað krefjist frekari skoðunar er konum vísað í svokallaða sérskoðun af brjóstum, sem felst oftast í ómskoðun og eða ástungu.“

Því er ekki svo að bið sé eftir þjónustunni frá Krabbameinsfélaginu. Að jafnaði er um 4 prósentum kvenna vísað í sérskoðun í framhaldi af skimun. Biðtími eftir þeirri skoðun var á tímabili allt of langur, eftir að framkvæmd skoðananna færðist til Landspítala þann 1. janúar 2017.

„Til að vinna niður biðlista hefur spítalinn endurtekið ráðið lækna að utan tímabundið. Ráðstafanir spítalans hafa gert það að verkum að biðtími eftir sérskoðunum hefur styst en enn þarf að bæta í til að biðin sé ekki lengri en tvær vikur eins og kveðið er á um í evrópskum leiðbeiningum,“ segir Halla enn fremur. „Ljóst er að finna þarf leiðir sem duga til þess að biðtími sé alltaf innan ásættanlegra marka og ekki verði til biðlisti sem krefst sérstaks átaks að ná niður.“ 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×