Innlent

Ósáttur nágranni man ekki eftir árás og innbroti vegna „ruglings í höfðinu“

Bryndís Silja Pálmadóttir skrifar
Héraðsdómur Vesturlands er í Borgarnesi.
Héraðsdómur Vesturlands er í Borgarnesi. Fréttablaðið/Pjetur
Landsréttur þyngdi í gær dóm Héraðsdóms Reykjavíkur og dæmdi karl á sextugsaldri í fimm mánaða fangelsi fyrir innbrot og líkamsárás á nágranna árið 2016. Héraðsdómur Vesturlands dæmdi manninn upphaflega í þriggja mánaða fangelsi.

Í september 2016 barst lögreglu tilkynning um að maður væri að reyna að brjótast inn í íbúð á annarri hæð í fjölbýlishúsi. Á vettvangi var kona, í miklu uppnámi og blóðug á höndum. Sagði hún nágranna hafa brotist inn í gegnum útidyr og ráðist á mann hennar. Börn þeirra urðu vitni að árásinni. Mikið var af blóðslettum á gólfi og veggjum.

Fyrir dómi sagðist maðurinn hafa verið orðinn langþreyttur á leiðindum við nágranna sinn út af einhverju, sem hefði í raun ekkert verið, og ákveðið að ræða við hjónin og ná sáttum. Hann hefði verið „í glasi“ og ekki í vondu skapi þegar hann lagði af stað upp stigann í átt að íbúð þeirra, með góðum huga. Hins vegar kvaðst hann ekki geta tjáð sig frekar um málið vegna óminnis og ruglings í höfðinu.

Konan sagði nágrannann hafa brotist inn, gengið fram hjá henni og inn í stofu, þar sem börn hennar földu sig á bak við sófa. Kvaðst hún ekki hafa þorað að kalla á eiginmann sinn, sem var úti í bílskúr, á meðan maðurinn var inni í stofu en gert það að lokum. Maðurinn sagðist fyrir dómi hafa heyrt eiginkonu sína reka upp „skaðræðisóp“ en þegar hann kom inn í íbúðina spurði hann nágrannann hvað hann væri „í andskotanum að gera þarna“.

Lýsti konan því fyrir dómi hvernig nágranninn sneri sér við og mennirnir tveir hefðu dottið. Þá sagðist hún hafa séð nágrannann slá mann sinn þrisvar í andlit og höfuð og hafa á endanum hringt á lögregluna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×