Fótbolti

Stelpurnar í öðrum styrkleikaflokki fyrir EM-dráttinn

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Glódís Perla Viggósdóttir og stelpurnar okkar verða einum styrkleikaflokk neðar en síðast.
Glódís Perla Viggósdóttir og stelpurnar okkar verða einum styrkleikaflokk neðar en síðast. vísir/vihelm
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta verður í öðrum styrkleikaflokki þegar að dregið verður til undankeppni EM 2021 sem fram fer í Englandi eftir þrjú ár.

Þetta kemur fram á heimasíðu evrópska knattspyrnusambandsins en stelpurnar okkar voru í efsta styrkleikaflokki fyrir dráttinn til undankeppni EM 2017 og sluppu þar með við að mæta bestu liðum Evrópu.

Nú gæti íslenska liðið lent í riðli með Frakklandi, Þýskalandi, Hollandi, Spáni, Svíþjóð, Noregi, Sviss, Skotlandi eða Ítalíu sem öll eru í efsta styrkleikaflokki en þjóðunum er raðað eftir coefficient-stigum.

Dregið verður í Nyon 22. febrúar en fyrstu leikirnir verða svo spilaðar í lok ágúst og byrjun september á næsta ári en síðustu leikirnir fara fram í september árið 2020.

Efstu liðin í riðlunum níu komast beint á EM á Englandi 2021 og þrjú bestu liðin í öðru sæti fara sömuleiðis beint á lokamótið. Sex næstu lið sem hafna í öðru sæti fara svo í umspil um þrjú síðustu lausu sætin á Evrópumótin.

Umspilið fer fram heima og að heiman um miðjan október 2020 en EM 2021 fer svo fram í júlí.

Styrkleikaflokkarnir:

Pottur 1: Frakkland, Þýskaland, Holland, Spánn, Svíþjóð, Noregur, Sviss, Skotland, Ítalía.

Pottur 2: Austurríki, Danmörk, Ísland, Belgía, Rússland, Wales, Úkraína, Finnland, Tékkland.

Pottur 3: Portúgal, Írland, Pólland, Rúmenía, Serbía, Slóvenía, Ungverjaland, Bosnía og Hersegóvína, Hvíta-Rússland.

Pottur 4: Tyrkland, Slóvakía, Króatía, Norður-Írland, Grikkland, Ísrael, Kasakstan, Albanía, Moldóva.

Pottur 5: Færeyjar, Malta, Makedónía, Eistland, Svartfjallaland, Georgía, Lettland, LItháen, Aserbáidjan, Kýpur, Kósóvó.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×