Fótbolti

Vilja breyta forgangsröðuninni

Hjörvar Ólafsson skrifar
Aðalkosningaloforð Guðna Bergssonar var að setja á laggirnar starf yfirmanns knattspyrnumála hjá KSÍ. Það hefur ekki enn tekist.
Aðalkosningaloforð Guðna Bergssonar var að setja á laggirnar starf yfirmanns knattspyrnumála hjá KSÍ. Það hefur ekki enn tekist. Fréttablaðið/Anton Brink
Meðal þess sem rætt var á fundi forráðamanna aðildarfélaga KSÍ um helgina var staða yfirmanns knattspyrnumála. Staðan var auglýst laus til umsóknar í október síðastliðnum, umsóknarfrestur var til 15. nóvember og vonir stóðu til að ráðið yrði í starfið fyrir lok þessa árs. Í kjölfar fundarins tilkynnti Guðni Bergsson, formaður KSÍ, hins vegar að ráðningunni yrði frestað fram yfir ársþing KSÍ í febrúar á næsta ári.

Guðni brást þannig við tillögu sem fram kom á fundinum þess efnis að heppilegra sé að ársþingið fái að koma að því að móta starfið og skuldbinda sambandið til framtíðar.

Haraldur Haraldsson var mættur á fyrrgreindan fund sem framkvæmdastjóri Víkings og þar að auki sem formaður Íslensks toppfótbolta (ÍTF) sem eru hagsmunasamtök félaga sem eiga lið í tveimur efstu deildunum hér á landi.

„Þetta var góður fundur þar sem málin væru rædd á yfirvegaðan og málefnalegan hátt. Við fengum þar ágætis svör við því hver áformin eru með stöðu yfirmanns knattspyrnumála og stöðu mála hvað Laugardalsvöll varðar,“ sagði Haraldur í samtali við Fréttablaðið.

„Það er ekkert launungarmál að okkur sem störfum í hreyfingunni hefur fundist nokkuð óljóst hvert hlutverk þess manns sem á að sinna þessu starfi á að vera. Við fengum fína kynningu á því og það var svo niðurstaðan eftir fundinn að ársþingið fengi að ráða framhaldinu hvað varðar ferlið við að koma þessari stöðu á koppinn sem er bara mjög jákvætt,“ segir hann.

„Við hjá ÍTF erum á þeirri skoðun að peningunum gæti mögulega verið betur varið í önnur verkefni. Það er því eðlilegt að hlustað verði á vilja félaganna þegar kemur að þessu máli. Það verður svo bara spennandi að sjá hvað félögin vilja gera í þessu máli þegar þar að kemur,“ segir Víkingurinn.

„Þessa dagana er svo í gangi undir­búningur hjá ÍTF fyrir ársþingið þar sem við höfum hug á að koma fram sams konar eða svipuðum breytingum og á síðasta þingi. Það eru lagabreytingar sem snúa að því að ÍTF fái umboð til að semja um mark­aðsréttindin fyrir efstu deildirnar, þær fái aukið atkvæðavægi á ársþinginu og fellt verði út ákvæði þess efnis að aðilar geti eingöngu setið í nefndum og stjórnum á vegum KSí í 12 ár,“ segir Haraldur.

„Við erum að freista þess að ná samkomulagi við stjórn KSí um að þessar lagabreytingar fái brautargengi á þinginu. Að öðrum kosti verður farin sama leið og síðast og tillögurnar lagðar fram í okkar nafni á þinginu og kosið um þær.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×