Fótbolti

Fram og ÍBV skyldu jöfn í tíu marka leik í Lengjubikar karla

Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fram, stýrði sínum mönnum gegn sínu fyrrverandi félagi ÍBV í dag.
Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fram, stýrði sínum mönnum gegn sínu fyrrverandi félagi ÍBV í dag. vísir/daníel
Það var boðið upp á flugeldasýningu í Úlfarsárdal í dag þegar Fram mætti ÍBV í Lengjubikar karla í knattspyrnu. Lokatölur urðu 5-5, hvorki meira né minna.

Fram komst í 2-0 með mörkum frá Atla Fannari Jónssyni og Ingólfi Sigurðssyni. En Atli Fannar var að mæta sínum gömlu félögum í ÍBV.

Elvar Ingi Vignisson minnkaði muninn fyrir ÍBV á 17. mínútu en hann átti svo sannarlega eftir að koma við sögu því hann skoraði fjögur mörk í leiknum. Elvar Ingi kom til ÍBV í vetur frá Fjarðabyggð.

Atli Fannar og Ingólfur skoruðu tvö mörk hvor fyrir Fram og Gunnlaugur Hlynur Birgisson, lánsmaður frá Breiðabliki, skoraði eitt mark.

Fyrir ÍBV skoraði Elvar Ingi fjögur mörk eins og áður segir og Benedikt Októ Bjarnason skoraði eitt mark.

Þetta var síðasti leikur A-riðils. Fram endaði í neðsta sæti riðilsins með þrjú stig en Eyjamenn endaði í fjórða sæti með 4 stig og betri markatölu en Huginn.

Einn leikur fór fram í fjórða riðli A-deildar þegar Leiknir frá Fáskrúðsfirði fékk Fjölni í heimsókn í Fjarðabyggðahöllina.

Leikurinn byrjaði gæfulega fyrir heimamenn því Björgvin Stefán Pétursson kom þeim yfir á 8. mínútu. Atli Már Þorbergsson, leikmaður Fjölnis, fékk að líta rauða spjaldið á 28. mínútu en það kom ekki að sök.

Þrátt fyrir að leika manni færri í rúman klukkutíma náðu Fjölnismenn að skora þrjú mörk og fara heim með 3-1 sigur í farteskinu. Mörk Fjölnis skoruðu þeir Tobias Nielsen, Guðmundur Karl Guðmundsson og Birnir Snær Ingason.

Fjölnir er í 2. sæti fjórða riðils með 9 stig en Leiknir F. er í 5. sæti með 4 stig. Bæði lið hafa leikið alla sína leiki í riðlinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×