Guðmundur tekur lagið á nýja heimavellinum | Myndband Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 29. mars 2016 15:25 Guðmundur hefur spilað þrjá A-landsleiki. vísir/getty
Guðmundi Þórarinssyni, nýjasta leikmanni Rosenborg, er fleira til lista lagt en að sparka í fótbolta. Guðmundur er nefnilega fær söngvari auk þess sem hann spilar á gítar.Guðmundur skrifaði undir þriggja ára samning við norsku meistarana á dögunum en hann kemur til Rosenborg frá Nordsjælland í Danmörku. Hjá Rosenborg hittir Guðmundur fyrir landa sína, Hólmar Örn Eyjólfsson og Matthías Vilhjálmsson.Í myndbandi sem birtist á vefsíðu TV2 í Noregi sést Guðmundur taka lagið á nýja heimavellinum, Lerkendal Stadion. Guðmundur tekur m.a. gamla Coldplay-slagarann Yellow. Þrátt fyrir tónlistarhæfileikana segist Guðmundur fyrst og fremst vera fótboltamaður. „Ég er fyrst og fremst hérna til að spila fótbolta. En tónlistin hjálpar mér að dreifa huganum,“ sagði Guðmundur sem gaf nýlega út lagið Saman sem hann samdi ásamt bróður sínum, Ingólfi Þórarinssyni, betur þekktur sem Ingó Veðurguð. Ingólfur er einnig liðtækur fótboltamaður en hann samdi við 2. deildarlið Ægis fyrir tæpum tveimur vikum síðan. Hann hefur einnig spilað með Selfossi, Fram, Víkingi R., Hamri og KFS á ferlinum.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Sport Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Enski boltinn UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Enski boltinn Fleiri fréttir Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Í beinni: Real Madrid - Espanyol | Þurfa að halda í við sjóðheita Börsunga Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari 2024 Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Gróðursetja tvö hundruð tré fyrir hvert skorað mark Ferguson saknar fótboltans Uppgjörið og viðtöl: Víkingur - Þróttur 1-1 | Eitt stig á hvort lið í fremur rólegum leik „Ætlum að taka bikarinn norður, það er bara staðan“ „Held að þetta verði mjög erfiður leikur“ Sjá meira