Fótbolti

Árangurinn styrkir stöðu íslenskra félagsliða

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ellert Hreinsson og félagar í Breiðabliki gerðu góða ferð til Austurríkis í vikunni og slógu út Sturm Graz.
Ellert Hreinsson og félagar í Breiðabliki gerðu góða ferð til Austurríkis í vikunni og slógu út Sturm Graz. Mynd/Vilhelm
Íslensk félagslið hafa náð frábærum árangri í Evrópukeppnunum þetta árið. Öll fjögur íslensku liðin unnu fyrstu andstæðinga sína í Evrópukeppnunum og tvö þeirra, FH og Breiðablik, eru komin enn lengra eftir sigra á liðum sem voru hærra skrifuð. KR og ÍBV féllu hins vegar úr leik gegn mjög sterkum andstæðingum.

Gunnar Gylfason hefur starfað að þátttöku íslenskra félagsliða í Evrópukeppnum fyrir hönd KSÍ og segir árangurinn sá besta í tæpan áratug. „Þetta er besti árangur okkar síðan við komum fjórum liðum í Evrópukeppnirnar,“ segir hann.

Árangur íslenskra liða hefur tvíþætt áhrif. Annars vegar á landsstuðul íslenskra liða í heild sinni en staða Íslands á þeim lista ákveður hversu mörg sæti Ísland fær í hverri keppni og í hvaða umferð þau hefja þátttöku.

Hins vegar safna liðin sér svo sjálf stigum fyrir árangur og fá stig samkvæmt því hversu langt þau komast í keppninni. Sá stigafjöldi ákvarðar hvorum megin liðin lenda þegar raðað er í efri og neðri styrkleikaflokk þegar lið eru dregin saman í keppni.

„Árangur liðanna í leikjunum sjálfum – sigrar og jafntefli – hækka svo landsstuðul Íslands. Jafntefli ÍBV við Rauðu stjörnuna í vikunni hjálpar því landsstuðlinum þó svo að Eyjamenn hafi fallið úr leik,“ útskýrir Gunnar.

FH var í neðri styrkleikaflokki þegar dregið var í annarri umferð forkeppni Meistaradeildar og litháíska liðið Ekranas í efri. FH var með næstflest stig af liðunum í neðri hlutanum en eftir sigur liðsins á Ekranas er mjög líklegt að FH-ingar verði í efri hlutanum ef liðið kemst aftur í forkeppni Meistaradeildarinnar á næsta ári. Til þess þarf þó FH að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn í haust.

Staða KR og Breiðabliks er einnig sterk þar sem liðin hafa spilað reglulega í Evrópukeppnum síðustu ár. Fyrir fram er þó erfitt að meta stöðu íslenskra liða fyrr en vitað er hvaða lið komast í Evrópukeppnirnar hverju sinni. Þó er ljóst að árangurinn í ár eykur líkurnar til muna á að íslensk lið fái auðveldari andstæðinga í fyrstu umferðum forkeppni Meistaradeildar Evrópu og Evrópudeildarinnar á komandi árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×