Fótbolti

Pálmi lék allan leikinn í tapi

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Pálmi í leik með íslenska landsliðinu
Pálmi í leik með íslenska landsliðinu MYND / STEFÁN
Pálmi Rafn Pálmason lék allan leikinn fyrir Lilleström sem tapaði 1-0 fyrir Vålerenga í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Það var markalaust í hálfleik.

Varnarmaðurinn Geancarlo Gonzalez skoraði eina mark leiksins á 56. mínútu.

Vålerenga lyfti sér upp í 9. sæti deildarinnar með sigrinum en Lilleström féll niður í 12. sæti með tapinu og er rétt fyrir ofan fallsvæðið eftir 14 umferðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×