Fótbolti

BÍ/Bolungarvík á toppinn

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Þróttur er enn án stiga
Þróttur er enn án stiga

BÍ/Bolungarvík skellti Þrótti 2-1 á Torfnesvelli þegar liðin mættust í 1. deild karla í fótbolta í dag. BÍ/Bolungarvík er því eina liðið með fullt hús stiga eftir tvær umferðir.

Hafsteinn Rúnar Helgason skoraði strax á 13. mínútu fyrir heimamenn fyrir vestan og Ben J. Everson bætti öðru marki við átta mínútum síðar.

Þrótti tókst ekki að minnka muninn fyrr en á 90. mínútu en það var of lítið of seint og BÍ/Bolungarvík fagnaði öðrum sigrinum í jafn mörgum leikjum.

Þróttur hefur tapað báðum leikjum sínum 2-1 og er á botninum ásamt KF og Völsungi sem eiga leik til góða síðar í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×