Fótbolti

Jafntefli á Sauðárkróki

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Völsungur sótti gott stig á Sauðárkrók.
Völsungur sótti gott stig á Sauðárkrók. Mynd/Már Höskuldsson

Annarri umferð 1. deildar karla í fótbolta lauk í kvöld á Sauðárkróki þar sem Tindastóll og Völsungur skildu jöfn 1-1. Fyrstu stig Völsungs í deildinni þar staðreynd.

Marko Blagojevic kom Völsungi yfir með marki úr vítaspyrnu á 9. mínútu. Steven Beattie jafnaði metin á 39. mínútu og jafnt í hálfleik 1-1.

Ekkert var skorað í seinni hálfleik. Völsungur er þar með komið með stig og Tindastóll er með tvö stig en liðið gerði einnig 1-1 jafntefli í fyrstu umferð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×