Viðskipti erlent

Verðið á Brent olíunni komið undir 100 dollara á tunnuna

Heimsmarkaðsverð á olíu heldur áfram að lækka. Í morgun var verðið á Brent olíunni komið undir 100 dollara á tunnuna og hefur ekki verið lægra síðan í júlí í fyrra.

Í frétt um málið á vefsíðunni e24 segir að verðið á Brent olíunni hafi lækkað um 2 dollara í gærdag og hefur verðið þar með lækkað um 19% frá því að það náði hámarki í febrúar s.l. Bandaríska léttolían hefur einnig lækkað og er verð hennar komið undir 88 dollara á tunnuna.

Þessar verðlækkanir í gær komu í kjölfar fregna um að olíubirgðir Bandaríkjanna hefðu aukist nokkuð meir en spáð var í síðustu viku en þessar tölur verða gerðar opinberar á morgun, miðvikudag.

Minni hagvöxtur í Kína en spáð var spilar einnig inn í dæmið sem og að Alþjóðaorkustofnunin hefur dregið úr spám sínum um eftirspurn eftir olíu árinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×