Viðskipti erlent

Reynir að róa markaði

Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, reynir nú að róa markaði en skuldastaða Ítalíu er slæm. Gagnrýnendur forsætisráðherrans segja hann sjálfan hlut vandans.

Maður getur efast um margt þegar kemur að Silvio Berlusconi. En eitt er ljóst. Hann er hugrakkur. í dag heldur Berlusconi tvær ræður á þinginu um skuldavanda Ítala. Hann heldur því fram að staða Ítalíu sé góð. Að minnsta kosti viðráðanleg.

Andstæðingar Berlusconi telja reyndar eitt stærsta vandamálið Berlusconi sjálfur, hann dragi úr trúverðugleika landsins. Hvort ræður Berlusconis í dag rói markaðana er ómögulegt að segja til um.

Staðreyndirnar eru hins vegar þessar: Ítalía kemur næst á eftir Grikklandi í röð þeirra landa sem glíma við hæstu þjóðarskuldir í Evrópu. Skuldir Ítalíu eru 120 prósent af þjóðarframleiðslu landsins. 48 milljarða evru björgunarpakki til Ítalíu er lýst í erlendum fjölmiðlum eins og dropa sem fellur á heitan stein. Hann skipti í raun engu máli.

Vandamálið á Ítalíu er einnig stærra. Óráðsía einkennir stjórnsýslu og er sjálfur fjármálaráðherrann, Giulio Tremonti, talinn tengjast vandræðalegu peningaþvottarmáli.

Silvio Berlusconi vill hins vegar blása von í brjóst Ítala. En bjartsýni borgar ekki skuldir. Aðeins 23 prósent Ítala treysta forsetanum og stjórn hans samkvæmt nýjustu könnunum. Staða hans er slæm.

Þetta eru örlagaríkir dagar í lífi Ítala sem hefðu eflaust fremur kosið að liggja á heitum sólarströndum og hlusta á hafið - en nauðvörn forseta sem er rúinn trausti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×