Formúla 1

Renault færist nær toppslagnum

Robert Kubica á Renault hefur átt góða spretti í mótum ársins á Renault.
Robert Kubica á Renault hefur átt góða spretti í mótum ársins á Renault. Mynd: Getty Images

Pólverjinn Robert Kubica telur að Renault liðið hafi tekið miklum framförum frá fyrsta mótinu í Formúlu 1, en átta mótið er lokið. Hann telur Renault liggja mærri toppslagnum og bílar liðsins verða með ýmsar nýjungar í mótinu í Valencia um næstu helgi.

"Bilið í toppslaginn er ekki svo stórt, en við eigum samt langt í land og því marki náum við aðeins með eljusemi", sagði Kubica i frétt á autosport.com í dag.

"Við verðum með nýja hluti í bílnum þess helgina og vonum að það verði skref uppávið. En það mæta öll lið með nýjungar, þannig að árangurinn markast af því hvað aðrir hafa fram að færa líka. Þá sjáum við hvar við stöndum gagnvart Mercedes", sagði Kubica.

Alain Permane, einn af yfirmönnum liðsins telur framfarir Renault hafi verið miklar á árinu.

"Við höfum séð magnaða framþróun bílsins í ár. Ef við tökum mið af besta tíma í tímatökum á milli móta, þá höfum við stöðugt verið að bæta okkur. Við höfum vaxið hraðar en sumir keppinauta okkar og með hlutum sem við mætum með um helgina ætti það að halda áfram", sagði Permane.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×