Viðskipti erlent

Straumur selur hlut sinn í Magasin du Nord

Með kaupunum nú yfirtekur Fiyaz 50% eign Straums í Solstra Holding, félag sem hann og Straumur hafa rekið í sameiningu.
Með kaupunum nú yfirtekur Fiyaz 50% eign Straums í Solstra Holding, félag sem hann og Straumur hafa rekið í sameiningu.

Straumur hefur selt helmingshlut sinn í Magasin du Nord til pakistanska fjárfestisins Alshair Fiyaz. Er þessi þekkta danska stórverslun því komin alfarið í eigu Fiyaz.

Fjallað er um málið á vefsíðunni business.dk. Þar segir Oscar Crohn forstjóri Straums í Danmörku að það hafi alltaf legið í spilunum að þessi helmingshlutur yrði seldur. „Við töldum það góða tímasetningu að selja núna," segir Crohn og bætir því við að tími hafi verið kominn til að kveðja stórverslunina.

Skömmu eftir að Fiyaz keypti helmingshlut í Magasin du Nord í ágúst fyrra var rekstur stórverslunarinnar seldur til bresku verslanakeðjunnar Debenhams.

Með kaupunum nú yfirtekur Fiyaz 50% eign Straums í Solstra Holding, félag sem hann og Straumur hafa rekið í sameiningu. Inn í Solstra eru, auk Magasin, eignirnar stórverslunin Illum og Magasin-eignir í Lyngby, Árósum og Óðinsvéum.

Eftir söluna á Straumur í Danmörku enn verslanaeignirnar Biva, Day Birger Mikkelsen og helminginn af fasteignum Magasin við Kongens Nytorv.

Samkvæmt Crohn á Straumur enn um 135 eignir og fjárfestingar sem ætlunin er að selja á næstu fimm til sjö árum.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×