Viðskipti erlent

Gjaldþrota auðmannabanki átti aðeins 40 viðskiptavini

Capinordic Bank hefur þegar kostað innistæðutryggingasjóð Danmörku um 800 milljónir danskra kr. eða rúmlega 18 milljarða kr.
Capinordic Bank hefur þegar kostað innistæðutryggingasjóð Danmörku um 800 milljónir danskra kr. eða rúmlega 18 milljarða kr.
Hinn gjaldþrota danski auðmannabanki (rigmandsbank) Capinordic Bank átti aðeins 35 til 40 viðskiptavini í Danmörku. Nær allir þessir viðskiptavinir tilheyrðu svokölluðum milljarðamæringaklúbb landsins en meðal þeirra voru Erik Damgaard, Aldo Petersen, Peter Forchammer og Ole Vagner.

Stór hluti af þessum auðmönnum voru síðan aftur meðeigendur að fjármálafyrirtækinu Capinordic, sem var móðurfélag bankans þar til hann varð gjaldþrota í febrúar s.l.

Í umfjöllun um málefni Capinrodic Bank í blaðinu Börsen í vikunni segir að féið sem bankinn lánaði þessum viðskiptavinum kom að nær öllu leyti frá útibúum bankans í Svíþjóð. Þar rak hann harðskeytta markaðssetningu með tilboðum um hærri vexti en aðrir og tókst að fá sænskan almenning til að leggja um milljarð danskra kr. inn á innlánsreikninga í bankanum. Þetta fé var síðan lánað til fyrrgreindra viðskiptavina.

Í Börsen kemur fram að viðskiptavinirnar hafi notað lánin til að fjárfesta í ráðstefnuhöllum, fasteignum og orkufyrirtækjum. Engir aðrir en fyrrgreindur 40 manna hópur hafði aðgang að lánunum þessum en veðin fyrir þeim voru oft vafasöm, m.a. voru þau tekin í eignum sem viðkomandi hafði þegar veðsett öðrum fjármálastofnunum í Danmörku.

Fram kemur í umfjöllun Börsen að gjaldþrot Capinordic Bank hafi þegar kostað innistæðutryggingasjóð Danmörku um 800 milljónir danskra kr. eða rúmlega 18 milljarða kr. Þann reikning mun sjóðurinn svo senda áfram til annarra banka í Danmörku.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×