Viðskipti erlent

Hlutabréf féllu vegna stöðu Grikklands

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Helstu vísitölur á hlutabréfamörkuðum féllu í gær. Ástæðan er sú að ekki hefur dregið úr áhyggjum manna af skuldastöðu ýmissa ríkja í Evrópu. Eftir lokun markaða í gær hafði evran ekki verið lægri í 13 mánuði gagnvart bandaríkjadal.

Samkomulag náðist um helgina um aðgerðir til að hjálpa Grikkjum út úr fjárhagsvandræðum sínum. Áhrifamenn innan Evrópusambandsins höfðu vonast til þess að þetta yrði til þess að auka traust fjárfesta en sú hefur ekki reynst raunin.

Dow Jones vísitalan féll um 2% í gær, Nasdaq um tæp 3% og S&P 500 um 2,38%. Helstu vísitölur í Lundúnum og Frankfurt féllu um 2,6% og aðalvísitalan í París féll um 3,6%. Aðalvísitalan í Grikklandi féll um 6,7%

Það er ekki bara skuldastaða gríska ríkisins sem menn hafa áhyggjur af heldur þykir skuldastaða Spánar og Portúgals einnig gefa tilefni til þess að vera á varðbergi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×