Formúla 1

Schumacher nýtur mests stuðnings

Michael Schumacher á sér marga fylgismenn víða um heim.
Michael Schumacher á sér marga fylgismenn víða um heim. mynd: Getty Images
Formúlu 1 áhugamenn um heim allan tóku þátt í víðtækri könnun á vegum

FOTA, samtaka keppnisliða og F1 racing tímaritsins í vetur. Samkvæmt henni

er Michael Schumacher með mest fylgi ökumanna.

Yfir 90.000 manns í 180 löndum tóku þátt í könnuninni, sem var gerð í

febrúar.

Schumacher fékk stuðning 19.5% aðspurðra, Fernando Alonso 9.7, Kimi

Raikkönen 7.2, Felipe Massa 6.1, Lewis Hamilton 6.0 og Robert Kubica 4.3.

Ferrari naut mests stuðnings keppnisliða með 30.1%, McLaren 19.1 og

Mercedes (Brawn) 10.1%.

Þá fagna áhorfendur stigagjöfinni nýju nokkuð vel, þar sem vægi sigurs er

miklu meira en áður. Stigagjöfin er 25, 18, 15, 12, 10, 8, 6, 4, 3, 2 og 1

í stað 10, 8, 6, 5, 4, 3, 2 og 1 eins og var. Alls telja 44.9 % að

stigagjöfin sé góð, en 61.9% telja að vægi fyrsta sætis ætti vera enn

meira.

Hágæða útsendingar (HD) er á óskalista 65.7%, 53.7% vilja geta valið bíl

til að fylgjast með og 52.4% myndu vilja sjá Formúlu 1 á netinu.

Vinsælasti kappaksturinn að mati aðspurðra er Mónakó, þá Ítalía, Bretland

og Þýskaland.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×