Formúla 1

Bílaframleiðendur hætta vegna kreppu

Toyota hættir í Formúlu 1 og er byrjað að pakka saman í höfuðstöðvum sínum í Köln í Þýskalandi.
Toyota hættir í Formúlu 1 og er byrjað að pakka saman í höfuðstöðvum sínum í Köln í Þýskalandi.

Ferrari og Renault eru einu bílaframleiðendurnir sem eru eftir í Formúlu 1, eftir brotthvarf BMW, Honda og Toyota. Ross Brawn, eigandi meistaraliðs Brawn telur þó að bílaframleiðendur mæti aftur þegar efnahagskreppan hefur gengið sitt skeið. Mercedes sér þremur liðum fyrir vélum, en er ekki með eigið keppnislið.

"Bílaframleiðendurnir sem hafa hætt gerðu það vegna kreppunnar, en ég trúi því að þeir munu snúa aftur, þó það taki einhver ár. Svona fyrirtæki hafa ekki tilfinningalega tengingu við Formúlu 1. Þess vegna koma þeir og fara. Ég hef verið í Formúlu 1 í 30 ár og það hefur gengið á ýmsu hvað þetta varðar", sagði Brawn.

Brawn keypti allan búnað Honda liðsins sem vildi hætta fyrir ári síðan og lið hans vann tvö titla með aðstoð Mercedes, sem sá liðinu fyrir vélum. Bíllinn var upphaflega hannaður fyrir Honda vélar.

Það er mikill áhugi hjá nýjum aðilum á Formúlu 1 og þess vegna mun íþróttinn dafna vel. Ferrari og Mercedes eiga langa sögu að baki í Formúlu 1 og verða áfram, hvort á sinn hátt. Ferrari er með eigið lið, en Mercedes sér Brawn, Force India og McLaren fyrir vélum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×