Formúla 1

Allt klárt fyrir Formúlu 1 í Abu Dhabi

Mótshaldarar í Abu Dhabi fagna því að brautin er tilbúinn. Í baksýn glittir í tveggja sæta kappakstursbíla sem áhorfendur fá sprett í.
Mótshaldarar í Abu Dhabi fagna því að brautin er tilbúinn. Í baksýn glittir í tveggja sæta kappakstursbíla sem áhorfendur fá sprett í. mynd: kappakstur.is

Mótshaldarar í Abu Dhabi segja allt tilbúið fyrir fyrsta Formúlu 1 mótið í Abu Dhabi um aðra helgi, en þeir segja líka að betra hefði verið að úrslitin í heimsmeistaramótinu í Formúlu 1 hefði ekki verið klár. En búið er að reisa dýrustu Formúlu 1 braut allra tíma í Abu Dhabi.

"Ég hlakka til að sjá Jenson Button takast á við brautina í Abu Dhabi. Hann er búinn að innsigla titilinn og getur því ekið til sigurs og endað tímabilið með stæl", sagði Ross Brawn um lokamótið í Abu Dhabi. Hann vann tvo titla um síðustu helgi með nýju liði sínu og sest niður með Button næstu daga til að skoða samning fyrir næsta ár. Hvorugur aðili vildi semja fyrr en úrslitin í meistaramótinu lágu fyrir.

Um 15.000 manns lögðu lokahönd á byggingu brautarinnar í Abu Dhabi sem notuð verður í fyrsta skipti í Formúlu 1. Þegar er búið að prufukeyra brautina með GP2 móti, en mótssvæðið er á sérbyggðu hafnarsvæði fyrir listisnekkjur. Brautin er hönnuð af Hermann Tilke, sem hefur hannað allar brautir síðustu ár og var engu til sparað. Ekkert keppnisliða hefur ekið brautina og standa því allir ökumenn jafnir að vígi fyrir mótið.

Það nýmæli veður í Abu Dhabi að mótið hefst í dagsbritu en lýkur í rökkri og verður brautin þá flóðlýst og við sólsetur. Ætti því að verða mikið sjóarspil í sjónvarpsútsendingu Stöðvar 2 Sport. Ítarlega verður fjallað um brautargerðina í Rásmarkinu fimmtudaginn 29. október.

Sjá brautarlýsingu frá Abu Dhabi




Fleiri fréttir

Sjá meira


×