Viðskipti erlent

Stærsta bankagjaldþrot Bandaríkjanna í ár er framundan

Stærsta bankagjaldþrot í Bandaríkjunum í ár er framundan. Um er að ræða bankann Guaranty Financial Group sem er næststærsta lánastofnunin í Texas.

Í frétt um málið á Bloomberg kemur fram að bankanum hefur ekki tekist að afla sér aukins fjár meðal hluthafa sinna og er þar orðin brotlegur við lög um bankastarfsemi, bæði hvað varðar eigið fé og lausafjárstöðu. Bankinn hefur verið í gjörgæslu eftirlitsstofnana um skeið.

Guaranty Financial Group hefur ekki sett fram ársfjórðungsuppgjör frá þriðja ársfjórðungi í fyrra en samkvæmt því uppgjöri glímdi bankinn við gríðarlegt tap af íbúðalánum ásamt tapi á skuldabréfum sem eru með tryggingar í fasteignum.

Fram kemur á heimasíðu bankans að eignir hans nemi um 16 milljörðum dollara en að orsökin fyrir því að uppgjör hafi ekki verið lögð fram síðan í fyrra sé að bankinn hafi ekki getað lagt mat á andvirði skuldabréfa sinna.

Guaranty Financial Group var skráður á markað árið 2007 og var verðmæti hlutar í honum þá 18,5 dollarar. Í dag er hluturinn metinn á 15 sent. Bankinn rekur yfir 150 útibú í Texas og Kaliforníu.

Það sem af er árinu hafa hátt í 70 litlir og meðalstórir bankar í Bandaríkjunum orðið gjaldþrota. Flestir í Kaliforníu.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×