Viðskipti erlent

Verð á demöntum hefur hrapað milli ára

Verð á demöntum hrapaði um 50% frá október í fyrra og fram til mars í ár en hefur síðan verið að rétta aðeins úr kútnum. Þetta veldur því að stærsta námuvinnsla heims á demöntum, De Beers, á nú í fjárhagslegum vandræðum.

De Beers stendur að baki sölu á 40% af öllum hrá- eða óslípuðum demöntum í heiminum. Samkvæmt ársuppgjöri félagsins féll salan á demöntum um 57% á fyrri helmingi ársins í ár og nam um 180 milljörðum kr.

Samkvæmt frétt í blaðinu Wall Street Journal reynir De Beers nú að koma í veg fyrir að markaðurinn með hrádementa falli alveg saman. Eftirspurnin hefur minnkað gífurlega með samsvarandi verð lækkunum. Af þeim sökum ætlar De Beers að draga verulega úr framleiðslu sinni. Á síðasta ári gaf námuvinnsla félagsins af sér um 9,6 tonn af demöntum.

De Beers hefur neyðst til að fá 500 milljón dollara lán frá eigendum sínum til að halda rekstrinum gangandi. Og þessa stundina á félagið í samningum við eigendurna um endurfjármögnun á 1,5 milljarða dollara skuldum sínum.

Þrátt fyrir teikn á lofti um að eftirspurnin sé aftur að aukast á Indlandi og í Kína spá sérfræðingar að demantamarkaðurinn muni ekki taka við sér að ráði fyrr en undir lok næsta árs.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×