Formúla 1

Mercedes að kaupa hlut í Brawn

Jenson Button varð meistari ökumann á Brawn bíl.
Jenson Button varð meistari ökumann á Brawn bíl. mynd: kappakstur.is
Mercedes bílaframleiðandinn hefur kallað til blaðamannafundar í dag og er talið að tilkynning um kaup fyrirtækisins á hlut í meistaraliði Brawn sé á dagskrá.

Mercedes á þegar 40% hlut í McLaren liðinu og talið er líklegt að fyrirtækið sjái liðinu áfram fyrir vélum, jafnvel þó af kaupum í Brawn verði. Brawn varð meistari bílasmiða og ökumanna á fyrsta ári í Formúlu 1. Mercedes sér einnig Force India fyrir vélum, en á meðan aðrir bílaframleiðendur hafa hrökklast frá Formúlu 1, þá virðist Mercedes vilja styrkja stöðu sína enn frekar í íþróttinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×