Næst stærsta hagkerfi heims að rétta úr kútnum 17. ágúst 2009 14:55
Útflutningur Japana jókst um 6,3% á öðrum ársfjórðungi frá fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Þetta er mesta aukning milli ársfjórðunga síðan á öðrum ársfjórðungi ársins 2002. Japan er næst stærsta hagkerfi heimsins á eftir Bandaríkjunum. Fjármálakreppa heimsins hefur komið illa niður á Japönum en þeir hafa þurft að þola mestu efnahagsniðursveiflu síðan í lok síðari heimsstyrjaldarinnar. Þetta er í fyrsta skipti í meira en eitt ár sem hagvöxtur eykst milli ársfjórðunga. Landsframleiðsla Japana jókst um 3,7% frá apríl síðastliðnum og fram til loka júní. Breska blaðið Guardian greinir frá þessu í dag. Útflutningur jókst um 6,3% frá fyrsta ársfjórðungi en það er fyrsta hækkun milli ársfjórðunga síðan í byrjun síðasta árs og sú mesta síðan á öðrum ársfjórðungi 2002. Japan er næst stærsta hagkerfi heimsins en í síðustu viku greindi Vísir frá því að landsframleiðsla hafi aukist meira en búist hafði verið við í tveimur stærstu hagkerfum Evrópu, Þýskalandi og Frakklandi. Eftirspurn eftir bílum og raftækjum, helstu framleiðsluvörum Japana, hefur minnkað gríðarlega síðan fjármálakrísan í heiminum hófst fyrir tæpum tveimur árum en nú er von á því að horfi til betri tíma hjá Japönum.
Tengdar fréttir Mjög jákvæðar fréttir frá stærsu hagkerfum Evrópu Landsframleiðsla í stærstu hagkerfum evrusvæðinsins, Þýskalandi og Frakklandi, dróst einungis saman um 0,1 prósent á öðrum ársfjórðungi þessa árs samanborið við 2,5% samdrátt á fyrstu þremur mánuðum ársins. Þykir þetta benda til þess að mesta samdráttarskeið í Evrópu frá síðari heimsstyrjöldinni sé senn á enda. 13. ágúst 2009 10:57 Mest lesið Hafa rúmir opnunartímar áhrif á verðlag? Neytendur „Við eigum margar rómantískar stundir í vinnunni“ Atvinnulíf Sunna veitir Livio samkeppni í frjósemi Viðskipti innlent Langaði svakalega mikið í sleik við George Clooney Atvinnulíf Gervigreind og tíska: Hafa nú þegar fengið 100 milljónir í styrki Atvinnulíf Stöðva þurfi rányrkju bílastæðaeigenda Neytendur Andri aðstoðarframkvæmdastjóri Júní Viðskipti innlent Enn eitt félag Quangs gjaldþrota Viðskipti innlent Gengi Icelandair flaug upp á við Viðskipti innlent Svekktur en ekki hissa á færri íbúðum í byggingu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stýrivextir lækkaðir í Bandaríkjunum í fyrsta sinn í fjögur ár Tupperware lýsir yfir gjaldþroti Snúa við dómnum og dæma Bonnesen í fangelsi Gera Apple að greiða tvær billjónir í skatta Skaut samstundis niður tillögur um efnahagslega björgun Evrópu Bein útsending: Apple kynnir nýjustu græjurnar Hætta steðjar að lífsgæðum Evrópubúa Volvo heykist á algjörri rafvæðingu árið 2030 Þessari rafmagnsflugvél er ætlað að flytja 90 farþega Zuckerberg harmar að hafa látið undan þrýstingi Bidens Breska stjórnin samþykkir að efla London City-flugvöll Sádar sagðir byrjaðir að skrúfa fyrir kranann Susan Wojcicki er látin Ummæli Trump vekja áhyggjur af sjálfstæði seðlabanka Hlutabréfin ruku aftur upp degi eftir hrun Google beið lægri hlut í risavöxnu einokunarmáli Hrun í hlutabréfamörkuðum ytra Sjá meira
Mjög jákvæðar fréttir frá stærsu hagkerfum Evrópu Landsframleiðsla í stærstu hagkerfum evrusvæðinsins, Þýskalandi og Frakklandi, dróst einungis saman um 0,1 prósent á öðrum ársfjórðungi þessa árs samanborið við 2,5% samdrátt á fyrstu þremur mánuðum ársins. Þykir þetta benda til þess að mesta samdráttarskeið í Evrópu frá síðari heimsstyrjöldinni sé senn á enda. 13. ágúst 2009 10:57