Viðskipti erlent

Viðræður um 22 milljarða hlut Kaupþings í Booker

Breska verslunarkeðjan Booker Group segir að hún muni á næstunni ræða við PricewaterhouseCoopers (PwC) um framtíð 22% eignarhluts Singer & Friedlander, banka Kaupþings í Bretlandi, í keðjunni. Hluturinn er metinn á rúmlega 111 milljónir punda eða rúmlega 22 milljarða kr.

Í frétt um málið á Reuters segir að hluturinn var áður í eigu Kaupthing Capital Partners II en í framhaldi af því að Singer & Friedlander á Mön var tekinn til gjaldþrotaskipta er hluturinn nú á forræði PwC.

"Okkar skilningur er sá að hluturinn hafi farið úr einu þrotabúi Kaupþings og yfir í annað þrotabú Kaupþings," segir Charles Wilson forstjóri Booker í samtali við Reuters. "Við munum ræða málið við PwC í þessari eða næstu viku."

Booker er stærsta "cash & carry" verslunarkeðja Bretlands en eins og nafnið gefur til kynna tekur hún eingöngu við reiðufé en ekki kortum frá viðskiptavinum sínum.

Samkvæmt uppgjöri síðasta reikningsárs, sem lauk í lok mars, var hagnaður upp á rúmlega 47 milljónir punda af rekstrinum fyrir skatt. Var þetta aðeins meiri hagnaður en vænst var en sérfræðingar höfðu spáð 42 milljónum punda.

Hlutir í Booker hækkuðu um 9% í morgun og er markaðsvirði keðjunnar nú 507 milljónir punda.

Wilson segir að hann viti ekki hvað verður um fyrrgreindan 22% hlut Kaupþings í Booker fyrr en málið hefur verið rætt við PwC. Sérfræðingar telja að málinu verði lokið fyrir júlí þegar Booker flyttst á aðallista AIM markaðarins í London.

Þess má geta að Baugur átti um tíma 31% í Booker í gengum Merlin en sá hlutur er væntanlega nú í höndum skilanefnda á Íslandi.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×