Samdráttur hjá J. C. Penny 15. nóvember 2007 13:30 Úr einni af verslunum J. C. Penny í Bandaríkjunum. Mynd/AFP
Hagnaður bandarísku verslanakeðjunnar J.C. Penny nam 261 milljón dala, jafnvirði 15,6 milljörðum íslenskra króna, á þriðja ársfjórðungi samanborið við 287 milljónir dala á sama tíma í fyrra. Þetta er níu prósenta samdráttur á milli ára. Stjórnendur verslunarinnar segja sölu hafa dregist saman á fjórðungnum og séu horfur á að efnahagurinn muni versna frekar á yfirstandandi fjórðungi þar sem ljóst þyki að neytendur haldi að sér höndum þessa dagana. Hagnaðurinn nemur 1,17 dölum á hlut samanborið við 1,26 dali á sama tíma í fyrra. Þetta er engu að síður nokkru yfir væntingum markaðsaðila. Tekjur verslunarinnar nam á tímabilinu 4,73 milljörðum dala, sem er einu prósenti minna en í fyrra. Í tilkynningu frá J.C. Penny kemur fram að salan hafi verið góð í byrjun hausts en versnað mjög í september og október þegar óróleika á mörkuðum varð vart en þá hafi neytendur haldið að sér höndum. Þá spilar veðurfar stórt hlutverk en veður var almennt gott í Bandaríkjunum á haustdögum sem leiddi til þess að færri fóru inn í verslanaleiðangur. Gengi hlutabréfa í verslanakeðjunni féll um rúm fjögur prósent á mörkuðum vestanhafs í dag. Viðskipti hefjast eftir tæpan klukkutíma á fjármálamörkuðum vestanhafs og þykja vísbendingar um að lækkun muni einkenna daginn á fjármálamörkuðum líkt og víða um heim.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið „Allir alltaf að segja að hann sé svo mjúkur“ Atvinnulíf Auglýsingastofurnar finna fyrir samdrætti Viðskipti innlent Misbauð meðferð á hundunum og mátti hætta á námskeiði Neytendur Þótti baðherbergið ógeðslegt og fór frá Íslandi Neytendur Atvinnumissir: „Það var rosa skrýtið að lenda í þessu“ Atvinnulíf „Frekar kvöldsvæfur heldur en morgunfúll“ Atvinnulíf Landsbankinn rekur lestina og lækkar vexti Viðskipti innlent Bogi og Linda kaupa af Heimum fyrir milljarða Viðskipti innlent Samþykktu allt að 45 prósent toll á kínverska rafbíla Viðskipti erlent Vaxtalækkun hænuskref í rétta átt en ekki megi gleyma nýlegum hækkunum Neytendur Fleiri fréttir Samþykktu allt að 45 prósent toll á kínverska rafbíla Samið um lok umfangsmikils verkfalls hafnarverkamanna Kærasta rafmyntamógúls í fangelsi vegna FTX-svikanna Stýrivextir lækkaðir í Bandaríkjunum í fyrsta sinn í fjögur ár Tupperware lýsir yfir gjaldþroti Snúa við dómnum og dæma Bonnesen í fangelsi Gera Apple að greiða tvær billjónir í skatta Skaut samstundis niður tillögur um efnahagslega björgun Evrópu Bein útsending: Apple kynnir nýjustu græjurnar Hætta steðjar að lífsgæðum Evrópubúa Volvo heykist á algjörri rafvæðingu árið 2030 Sjá meira