Sport

Sigurvin að ná sér

"Það er óvíst hvort ég geti verið með í næsta leik. Það væri eflaust skynsamlegt að hvíla sig aðeins en maður vill helst ekki þurfa gera það, því það er svo stutt eftir af mótinu," sagði Sigurvin og greinilegt að hann hungrar í að vera með í leiknum gegn Þrótti á sunnudag, en takist KR að sigra er 3. sætið í deildinni orðið að raunhæfu markmiði. Sigurvin er samningslaus að tímabilinu loknu en vildi ekkert gefa út um framhaldið. "Það hefur ekkert verið rætt við mig um áframhald en það er vanalega gert að móti loknu," sagði Sigurvin Ólafsson, miðvalllarleikmaður KR. Aðrar fréttir af KR eru þær að tvíburabræðurnir Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir hafa lokið keppni í ár vegna meiðsla og þá er Gestur Pálsson farinn að landi brott  í nám til Danmerkur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×