Sport

Wright-Phillips ekki með Englandi

Shaun Wright-Phillips, miðvallarleikmaður Chelsea, hefur dregið sig út úr enska landsliðshópnum fyrir leikinn gegn Dönum í kvöld vegna meiðsla á hné. "Shaun er með bólgið hné og við sáum enga ástæðu til þess að taka áhættu með hann," segir Sven Göran Eriksson landsliðsþjálfari. Meiðslin eru þó sögð smávægileg og ætti Wright-Phillips að vera orðinn klár í slaginn fyrir næsta leik Chelsea í ensku úrvalsdeildinni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×