Alþingi
290 291 292 293 294 295 296 297 … 297 ›
Skrifi einkavæðinganefnd bréf Einkavæðinganefnd sá ekki tilgang í að mæta á fund efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis vegna sölu Landssímans. Þingnefndinni var bent á að skrifa einkavæðinganefnd bréf. Stjórnarandstaðan í nefndinni gerði harða hríð að forsætisráðherra vegna málsins í upphafi þingfundar á alþingi í dag. Innlent 13.10.2005 18:53
Skýr vilji Alþingis um flugvöllinn Mjög erfitt er að ímynda sér að Reykjavíkurflugvöllur verði rekinn með aðeins einni flugbraut. Þetta sagði samgönguráðherra í umræðum á Alþingi í dag en hann sagði þingið hafa sýnt skýran vilja til að tryggja miðstöð innanlandsflugs í Reykjavík. Innlent 13.10.2005 18:52
Vill ekki hætta með samræmd próf Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra sagði í fyrirspurnartíma á Alþingi í gær að hún teldi ekki rétt að hætta samræmdum prófum í grunnskóla. Þessi skoðun ráðherra gengur þvert á ályktun Félags grunnskólakennara í síðustu viku sem vill hætta að prófa grunnskólanemendur með þessum hætti. Innlent 13.10.2005 18:51
Siv réðst að utanríkisráðherra Siv Friðleifsdóttir réðst að utanríkisráðherra í þinginu í dag vegna ummæla hans um Evrópustefnu Framsóknarflokksins. Víst væri um tímamót að ræða. Hún spurði sig um andrúmsloftið á stjórnarheimilinu; hvaða skilaboð væri verið að senda forsætisráðherra. Innlent 13.10.2005 18:51
Samkeppnisstofnun varaði við sölu Samkeppnisstofnun varaði við áhrifum af sölu grunnnets Landssímans fyrir fjórum árum. Stofnunin taldi það hafa alvarlegar afleiðingar ef ekki yrði gripið til hliðaraðgerða vegna símasölunnar. Innlent 13.10.2005 18:51
Hefnd fyrir olíumálið? Lúðvík Bergvinsson, þingmaður Samfylkingar, segir stjórnarfrumvörp um samkeppnismál veikja stöðu samkeppnismála. Að öllum líkindum sé verið að treysta pólitísk ítök í rannsókn samkeppnismála og hefna fyrir olíumálið. Innlent 13.10.2005 18:51
Fylgi sjálfstæðismanna og Vg eykst Fylgi Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna eykst en fylgi annarra flokka minnkar, samkvæmt nýrri þjóðmálakönnun Félagsvísindastofnunar sem unnin var fyrir Morgunblaðið og birt er í blaðinu í dag. Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú 39,3%, en var tæplega 34% í síðustu alþingiskosningum. Fylgi Vinstri grænna eykst um nær helming og er nú 16,5%. Innlent 13.10.2005 18:51
Þrjár nýjar stofnanir Í nýjum frumvörpum um breytingu á samkeppnislögum er lagt til að í stað Samkeppnisstofnunar verða til tvær stofnanir, Samkeppniseftirlitið og úrskurðarnefnd samkeppnismála. Að auki verður sett á fót Neytendastofa. Innlent 13.10.2005 18:51
Heimild yfirvalda felld niður Heimild samkeppnisyfirvalda til að bregðast við aðstæðum sem skaða samkeppni er felld niður samkvæmt lagafrumvörpum sem viðskiptaráðherra lagði fram í dag. Innlent 13.10.2005 18:51
Ekki nauðsynlegt að þýða öll lög Frá og með áramótum verða íslensk stjórnvöld ekki lengur skuldbundin til að þýða á íslensku öll lög og reglugerðir sem gilda hér á landi. Frumvarp dómsmálaráðherra, sem afnemur þýðingarskylduna, var í dag samþykkt sem lög frá Alþingi. Innlent 13.10.2005 18:51
Íslendingar flytja vopn til Íraks Ríkisstjórnin hefur boðist til að flytja 500 tonn af vopnum og skotfærum til Íraks á vegum NATO. Davíð Oddsson utanríkisráðherra upplýsti þetta á Alþingi í gær við umræður utan dagskrár um stuðning Íslands við þjálfun íraskra öryggissveita. Innlent 13.10.2005 18:51
Íslenskir dómstólar hlíti EFTA Í frumvörpum um breytingu á samkeppnislögum er ákvæði sem segir að íslenskir dómstólar verði að hlíta niðurstöðum Eftirlitsstofnunar EFTA í samkeppnismálum er varða Evrópska efnahagssvæðið. Iðnaðarráðherra segir það ekki brot á ákvæði í stjórnarskrá er varði sjálfstæði dómstólanna. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 18:51
Fylgi Framsóknar aldrei minna Fylgi Framsóknarflokksins er í sögulegu lágmarki, samkvæmt nýrri könnun þjóðarpúls Gallups sem birt var á RÚV í gær. Fylgi flokksins mælist nú rúmlega 10% og hefur minnkað um þrjú prósentustig frá síðustu könnun. Innlent 13.10.2005 18:51
Guðni vill rífa Steingrímsstöð Landbúnaðarráðherra lýsir því yfir að hann vilji fjarlægja Steingrímsstöð í Efra-Sogi. Það væri lítil fórn fyrir Landsvirkjun. Upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar segir ekki víst að það yrði urriðanum til bóta að fjarlægja stöðina. Innlent 13.10.2005 18:49
Hver á að eiga orkulindirnar? Grundvallarágreiningur í íslenskum stjórnmálum um hver eigi að eiga orkulindir þjóðarinnar kristallaðist í snörpum umræðum á Alþingi í dag. Formaður Vinstri grænna setti samstarfið innan R-listans í uppnám þegar hann strengdi þess heit að allt yrði gert til að koma í veg fyrir sameiningu orkufyrirtækja ríkisins og einkavæðingu þeirra. Innlent 13.10.2005 18:49
Áfengisgjald lækkað um 30% Gunnar Örlygsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, hefur lagt fram frumvarp um að áfengisgjald á léttvín og bjór verði lækkað um þrjátíu prósent sem myndi þýða mikla lækkun vegna þess hversu áfengisgjaldið vegur þungt í útsöluverði áfengis. Innlent 13.10.2005 18:47
Vilja algert reykingabann Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, og þrír aðrir þingmenn hafa lagt fram frumvarp um algert reykingabann á veitinga- og skemmtistöðum. Það sama á við þjónustusvæði utanhúss, séu þau undir föstu eða færanlegu þaki. Innlent 13.10.2005 18:47
Væri ekki á leið til lýðræðis Davíð Oddsson utanríkisráðherra sagði á Alþingi í dag að ef ekki hefði verið gerð innrás í Írak hefðu ekki verið neinar kosningar þar og þjóðin ekki á leið til lýðræðis. Innlent 13.10.2005 18:47
Stórt skref stigið á Alþingi Stórt skref var í dag stigið í átt að bættum réttindum langveikra barna og aðstandenda þeirra. Félagsmálaráðherra kynnti tillögur um að foreldrar gætu fengið greiðslur úr ríkissjóði í allt að níu mánuði til að sinna veikum börnum. Málið vakti almenna ánægju meðal þingmanna allra flokka á Alþingi í dag. Innlent 13.10.2005 18:47
Aukin réttindi foreldra Félagsmálaráðherra boðaði rétt fyrir hádegi umfangsmiklar breytingar á réttindum foreldra langveikra barna í fyrirspurnartíma sem nú stendur yfir á Alþingi. Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, bar upp fyrirspurnina um þennan rétt foreldra. Innlent 13.10.2005 18:47
Skurðstofunni í Eyjum ekki lokað Heilbrigðisráðherra stefnir að því að skurðstofu sjúkrahússins í Vestmannaeyjum verði ekki lokað í sex vikur í sumar eins og boðað hafði verið vegna fjárskorts sjúkrahússins. Sú ákvörðun hefur verið harðlega gagnrýnd og Magnús Þór Hafsteinsson, þingmaður Frjálslyndra, spurði ráðherra á Alþingi í dag hvort hann ætlaði að beita sér í málinu. Innlent 13.10.2005 18:47
Færa þarf sendiráð BNA Davíð Oddsson utanríkisráðherra tók undir það með Merði Árnasyni, þingmanni Samfylkingarinnar, í fyrirspurnatíma á Alþingi í gær að staðsetning bandaríska sendiráðsins í Þingholtunum væri ekki heppileg. Innlent 13.10.2005 18:47
Þorsteinn situr á eigin forsendum Að undanskildum Þorsteini Pálssyni, sendiherra Íslands í Kaupmannahöfn, hefur enginn sendiherra gegnt trúnaðarstarfi fyrir stjórnmálaflokka. Innlent 13.10.2005 18:47
Misskipting fer vaxandi Hver íbúi í Reykjavík fær að meðaltali um 10 þúsund krónur í fjárhagsaðstoð á ári og greiðir Reykjavíkurborg um 1,2 milljarða í fjárhagsaðstoð á ári. Það er allt að tífalt hærra á hvern íbúa en í öðrum sveitarfélögum. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 18:47
Ekki bein pólitísk afskipti Menntamálaráðherra ætlar að afnema afnotagjöld og breyta jafnframt fyrirkomulagi Ríkisútvarpsins. Pólitískt skipað útvarpsráð heyrir hugsanlega sögunni til - í það minnsta bein afskipti stjórnmálaflokka af rekstri Ríkisútvarpsins. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 18:47
Tryggja verður frelsi RÚV Svanfríður Jónasdóttir, fulltrúi Samfylkingarinnar í útvarpsráði, segir að tryggja verði frelsi Ríkisútvarpsins fari það á fjárlög. Innlent 13.10.2005 18:46
Afnotagjöld óviðunandi Í þingsályktunartillögu Frjálslynda flokksins sem nú er til umræðu á Alþingi segir að núverandi fjármögnun Ríkisútvarpsins með afnotagjöldum og auglýsingatekjum sé óviðunandi. Innlent 13.10.2005 18:46
Afnotagjöld RÚV felld niður Afnotagjöld Ríkisútvarpsins verða lögð af samkvæmt stjórnarfrumvarpi sem lagt verður fram á Alþingi á næstu vikum. Þingflokksformanni Framsóknarmanna líst best á nefskatt í staðinn. Innlent 13.10.2005 18:46
Afnotagjöld andstæð evrópulögum Afnotagjöld Ríkisútvarpsins verða lögð niður og eru stjórnvöld þannig að bregðast við gagnrýni ESA, Eftirlitsstofnunar EFTA. Menntamálaráðherra leggur fram frumvarp á næstunni þar sem hlutverk RÚV verður endurskilgreint. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 18:46
Engan glannaskap Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri-grænna vill fara varlega með málefni Ríkisútvarpsins. Innlent 13.10.2005 18:46