Lögreglumál
128 129 130 131 132 133 134 135 136 … 275 ›
Maður vistaður í fangageymslu fyrir að hafa dvalið of lengi á Íslandi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gær mann í miðborginni en samkvæmt tilkynningu lögreglu er hann grunaður um að hafa dvalið of lengi á Íslandi, nánar tiltekið innan Schengen-svæðisins. Var hann vistaður í fangageymslu og er málið í rannsókn en nánari upplýsingar er ekki að finna í tilkynningu. Innlent 17.11.2021 06:30
Ekki endilega þolandinn sjálfur sem keyri umræðuna „út á enda veraldar“ „Ef við horfum á þetta út frá þolendum ofbeldis þá leiðir þetta til þess, og ég vísa í reynslu mína sem lögmaður, að þegar umræðan verður svona ofboðslega hatrömm í garð gerenda þá myndast meiri hætta á að þolendur veigri sér við að segja frá ofbeldinu, sérstaklega þegar um er að ræða einhvern nákominn, af ótta við skrímslavæðinguna,“ segir Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar. Innlent 16.11.2021 17:46
Starfsmaður sendi myndir á Snapchat af íbúa sambýlis handleika kynfæri sín Héraðssaksóknari hefur ákært mann sem starfaði á sambýli í Reykjavík fyrir að hafa tekið myndskeið af íbúa þar sem hann lá nakinn í rúmi og handlék kynfæri sín og sent myndskeiðið á samskiptaforritinu Snapchat. Innlent 16.11.2021 07:31
Ungmenni ítrekað sýnt ógnandi hegðun við Egilshöll Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti fjölbreyttum verkefnum í nótt og var meðal annars kölluð út til að vísa sofandi konu úr strætisvagni. Þá var tilkynnt um ógnandi ungmenni við Egilshöll en samkvæmt tilkynningu frá lögreglu um verkefni næturinnar var um að ræða „endurtekna hegðun síðastliðna daga“. Innlent 16.11.2021 06:09
Gátu ekkert gert nema fylgjast með ferðamanninum fljóta burt Aðstæður í Reynisfjöru í síðustu viku þar sem ung kínversk kona lést af slysförum voru það erfiðar að ekki þótti stætt að leggja björgunarmenn í hættu við að reyna að bjarga konunni. Var lítið annað hægt að gera en að fylgjast með henni fljóta burt. Innlent 15.11.2021 22:24
Byltingarkenndar meðalhraðamyndavélar ófullkomnar en dekka stærra svæði Tímamót verða í umferðareftirliti á Íslandi á morgun þegar lögregla byrjar að sekta fyrir of háan meðalhraða bifreiða í fyrsta skipti. Sektakerfið er einfalt þó þar sé örlítil gloppa sem óprútnir aðilar geta nýtt sér. Innlent 15.11.2021 22:01
Tveir lögreglumenn slasaðir eftir árás á geðdeild Tveir lögreglumenn slösuðust og þurftu að leita á slysadeild Landspítala eftir að maður réðst á þá inni á geðdeild Landspítalans við Hringbraut í morgun. Innlent 15.11.2021 11:37
Slysið við Látravatn sjöunda andlátið í umferðinni á árinu Sjö hafa látist í umferðinni hér á landi það sem af er ári. Slysið á Örlygshafnarvegi, skammt frá Látravatni við utanverðan Patreksfjörð, um helgina var sjötta umferðarslysið á árinu þar sem maður lést. Innlent 15.11.2021 11:32
Þrettán ára drengur sleginn með barefli í höfuðið Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning í gærkvöldi um líkamsárás og ránstilraun í Kópavogi. Þrettán ára drengur var sleginn í höfuðið með barefli, þegar par veittist að honum og krafði hann um allt sem hann var með á sér. Innlent 15.11.2021 06:23
Fannst látinn í bifreið skammt frá Látravatni Ökumaður fannst látinn í bifreið skammt frá Látravatni við Patreksfjörð á ellefta tímanum í morgun. Vegfarandi kom að bifreiðinni sem hafði oltið út af Örlygshafnarvegi. Ökumaðurinn var einsamall í bílnum. Innlent 14.11.2021 17:45
Fámennt í miðbæ Reykjavíkur Nóttin var róleg hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Farið var í örfá útköll vegna hávaða en lítið af af fólki var í miðbæ Reykjavíkur. Innlent 14.11.2021 07:16
Takmarkanir dragi úr miklu álagi á lögreglu Töluverður erill var hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gær og í nótt. Lögreglan telur samt sem áður að draga muni úr álagi á lögreglumenn með breyttum opnunartíma skemmtistaða. Innlent 13.11.2021 16:42
Særðist alvarlega eftir hnífstunguárás við Hagkaup Sá sem varð fyrir hnífstunguárás á bílaplani við Hagkaup í Garðabæ í nótt særðist nokkuð alvarlega. Hann er þó ekki talinn í lífshættu að sögn Margeirs Sveinssonar aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglu. Innlent 13.11.2021 14:30
Skallaði lögreglumann í andlitið og hótaði lífláti Mikill erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gær. Talsvert var um hávaðakvartanir en lögreglu tókst ekki að sinna öllum kvörtunum vegna anna. Innlent 13.11.2021 07:27
Umfangsmikil lögregluaðgerð í Hagkaupum í Garðabæ Lögregla og sjúkrateymi var kallað út í Hagkaupum í Garðabæ á öðrum tímanum í nótt. Samkvæmt upplýsingum frá starfsfólki Hagkaupa var um að ræða slagsmál fyrir utan verslunina. Tveir hlutu stungusár í átökunum. Innlent 13.11.2021 01:43
Þýfi fyrir tugmilljónir króna skilað í réttar hendur Um sextíu til sjötíu innbrot hafa verið í húsnæði á höfuðborgarsvæðinu í hverjum mánuði síðan í sumar. Yfirlögregluþjónn segir að lögreglan upplýsi mörg málanna og hafi í þessari viku skilað þýfi fyrir tugmilljónir króna. Innlent 12.11.2021 19:19
„Ömurlegar fréttir kæri félagi“ Sólveig Anna Jónsdóttir, fyrrverandi formaður Eflingar, hefur ritað Magnúsi M. Norðdahl, lögfræðingi ASÍ harðort bréf þar sem hún sakar hann um að standa með ofbeldismanni. Hún telur að með framgöngu sinni hafi Magnús gert Alþýðusambandið vanhæft til aðkomu að málum sem snerta kynbundið ofbeldi og áreiti. Innlent 12.11.2021 15:57
Hafði í hótunum vopnaður öxi og klippum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í nótt mann í annarlegu ástandi í Hlíðahverfi en hann var vopnaður öxi og stórum klippum og hafði í hótunum við fólk. Maðurinn var vistaður í fangageymslu og verður tekin skýrsla af honum þegar bráir af honum. Innlent 12.11.2021 06:10
„Við breytum ekki fortíðinni“ „Þetta kemur upp í hugann á mér á hverjum degi. En við breytum ekki fortíðinni og við getum ekkert gert í henni. Það sem gerðist, gerðist. Alveg sama hvað við reynum,“ segir Þór Sigurðsson, sem var dæmdur fyrir að hafa banað öðrum manni árið 2002. Innlent 12.11.2021 06:00
Óku á öryggisslá við þinghúsið á flótta undan lögreglu Kona var flutt á bráðamóttöku Landspítala í nótt eftir að hún og samverkamaður freistuðu þess að komast undan lögreglu á vespu en enduðu á öryggisslá sem varnar óviðkomandi aðgangi við Alþingishúsið. Innlent 11.11.2021 06:10
Konan fannst látin í sjónum Konan sem leitað var að í sjónum við Reynisfjöru fannst látin á sjötta tímanum í dag. Hún var kínverskur ferðamaður. Innlent 10.11.2021 17:49
Ökumaður rafhlaupahjólsins látinn og hinn á gjörgæslu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa hafa til rannsóknar hvort átt hafi verið við innsigli á rafhlaupahjóli og vespu, sem rákust á í morgun, svo hægt væri að aka hraðar á þeim. Innlent 10.11.2021 15:52
Skoða hvort átt hafi verið við hjólin Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun við rannsókn sína á alvarlegu slysi við Sæbraut í morgun skoða hvort átt hafi verið við farartækin að því leyti að hægt væri að aka um á þeim yfir leyfilegum hámarkshraða. Innlent 10.11.2021 13:03
Þrjú innbrot og árás á dyravörð Lögreglu bárust í gær þrjár tilkynningar vegna innbrota. Í tveimur tilvikum var um að ræða innbrot á heimili en í einu innbrot í bifreið. Innbrotin áttu sér stað í þremur póstnúmerum; 103, 105 og 108. Innlent 10.11.2021 06:26
Drengurinn er fundinn heill á húfi Tíu ára gamall drengur sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir fyrr í kvöld er fundinn heill á húfi. Innlent 9.11.2021 19:21
Fordæma staðhæfingar Þorbjargar og vilja rannsókn Landssamband lögreglumanna vill að ríkissaksóknari rannsaki staðhæfingar Þorbjargar Ingu Jónsdóttur lögmanns, sem sagði á ráðstefnu á Hólum engan vafa leika á því að kerfið réttarkerfið færi í manngreiningarálit eftir þjóðfélagsstöðu. Innlent 9.11.2021 07:30
Varð fyrir hellusteini sem var kastað í gegnum rúðu veitingastaðar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til í miðborginni um klukkan 21.30 í gærkvöldi, þar sem hellusteini hafði verið kastað inn um rúðu á veitingastað. Steinninn lenti í enni viðskiptavinar staðarins, sem blæddi mikið. Innlent 9.11.2021 06:32
Hafi náð í haglabyssu þegar hann fékk ekki að upplifa unglingsárin aftur Lögreglan á Austurlandi rannsakar nú mál þar sem grunur er um að dvalargestum í sumarhúsahverfinu Einarsstöðum utan við Egilsstaði hafi verið hótað með skotvopni. Innlent 8.11.2021 17:04
Hraðamyndavélin á Sæbraut gómað tæplega fimm þúsund á árinu Hraðamyndavélin á Sæbraut í Reykjavík hefur náð hraðakstri alls tæplega 4.700 ökumanna á mynd frá ársbyrjun og til 1. nóvember 2021. Af þeim fjórum hraðamyndavélum sem umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu starfrækir er hraðamyndavélin á Sæbraut sú sem leiðir til langflestra sekta til ökumanna. Innlent 8.11.2021 08:01
Heimilisófriður reyndust kappsamir tölvuleikjaspilarar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti nokkuð fjölbreyttum verkefnum í nótt en hún var meðal annars kölluð til vegna slagsmála, heimilisófriðar og vinnupalls sem féll á bifreið í miðborginni. Innlent 8.11.2021 06:24