Körfubolti
185 186 187 188 189 190 191 192 193 … 219 ›
Weiss rekinn frá Seattle NBA-lið Seattle Supersonics rak í gær þjálfara sinn Bob Weiss og er aðstoðarmaður hans Bob Hill tekinn við þjálfun liðsins þangað til eftirmaður Weiss er fundinn. Gengi Seattle hefur verið upp og ofan það sem af er vetri en illa hefur gengið að byggja á góðum árangri sem náðist svo óvænt í fyrra, þegar liðið fór lengra en nokkurn óraði fyrir í úrslitakeppninni. Sport 4.1.2006 03:02
Stoudamire spilar ekki meira í ár Spútniklið Memphis Grizzlies hefur orðið fyrir gríðarlegu áfalli því leikstjórnandinn Damon Stoudamire fór í aðgerð í gær vegna hnémeiðsla og nú þykir víst að hann muni ekki leika meira með liðinu á þessu tímabili. Stoudamire var kjörinn nýliði ársins árið 1996 þegar hann lék með Toronto Raptors. Hann var með um 12 stig og 4 stoðsendingar að meðaltali í leik í vetur með Memphis. Sport 4.1.2006 03:12
Stu Jackson er glæpamaður Danny Fortson, leikmaður Seattle Supersonics í NBA deildinni á ekki von á góðu eftir nýjustu ummæli sín í garð Stu Jackson, sem er varaforseti deildarinnar. Fortson hefur þurft að greiða sem nemur 200.000 dollurum í sektir fyrir ósæmilega hegðun og tæknivillur í vetur og segir að hann hljóti ósanngjarna meðferð hjá Jackson - sem sé ekkert annað en glæpamaður. Sport 3.1.2006 18:02
Hill íhugar að hætta eftir næsta tímabil Framherjinn Grant Hill hjá Orlando Magic hefur viðurkennt að hann íhugi að leggja skóna á hilluna eftir næsta keppnistímabil í NBA deildinni, en Hill hefur sem kunnugt er átt við þrálát meiðsli að stríða allar götur síðan hann gekk til liðs við Orlando árið 2000. Sport 3.1.2006 16:36
New York lagði Phoenix í maraþonleik Fimm leikir fóru fram í NBA deildinni í körfuknattleik í nótt og þar bar hæst viðureign New York Knicks og Phoenix Suns, þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en í þriðju framlengingu. New York hafði betur 140-133. Sport 3.1.2006 10:48
Miami burstaði Minnesota Þrír leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Miami burstaði Minnesota 97-70 eftir að jafnræði hafði verið með liðunum í fyrri hálfleik. Pat Riley las hressilega yfir sínum mönnum í hálfleiknum og það dugði, því Miami fékk aðeins á sig 26 stig í síðari hálfleiknum. Dwayne Wade var stigahæstur í jöfnu liði Miami með 19 stig, en Wally Szczerbiak skoraði mest hjá Minnesota, 19 stig. Sport 2.1.2006 13:36
Cleveland stöðvaði Detroit LeBron James og félagar í Cleveland Cavaliers stöðvuðu níu leikja sigurgöngu Detroit Pistons í nótt með öruggum 97-84 sigri á heimavelli sínum. James skoraði 30 stig, hirti 7 fráköst og gaf 7 stoðsendingar fyrir Cleveland, en Rasheed Wallace og Rip Hamilton skoruðu 21 stig hvor fyrir Detroit sem er þó enn með bestan árangur allra liða í deildinni. Sport 1.1.2006 06:28
Áttundi sigur New Jersey í röð New Jersey Nets vann sinn áttunda leik í röð í nótt þegar liðið sigraði Atlanta Hawks 99-91. Vince Carter skoraði 37 stig fyrir New Jersey, en Al Harrington var atkvæðamestur hjá Atlanta með 26 stig. Alls voru spilaðir níu leikir í deildinni í nótt. Sport 31.12.2005 15:39
Bryant fær tveggja leikja bann Kobe Bryant, leikmaður Los Angeles Lakers, hefur verið dæmdur í tveggja leikja bann fyrir að gefa Mike Miller hjá Memphis ljótt olnbogaskot í leik liðanna á miðvikudagskvöldið. Höggið var einsskonar hefndarhögg hjá Bryant, sem fékk skurð á augað eftir Miller og svaraði hressilega fyrir sig þegar hann sneri aftur á völlinn með fimm spor saumuð í andlitið á sér. Sport 31.12.2005 04:46
Sigurganga Detroit heldur áfram Detroit Pistons vann í nótt níunda leikinn í röð í NBA deildinni þegar það skellti Miami Heat 106-101 á heimavelli sínum, en uppgjör liðanna sem mættust í úrslitum Austurdeildarinnar í fyrra var æsispennandi fram á lokamínúturnar þar sem Pistons sýndi af hverju liðið hefur verið í úrslitum NBA tvö ár í röð. Sport 30.12.2005 10:15
Marcus Camby fingurbrotinn Frákastahæsti leikmaðurinn í NBA-deildinni, miðherjinn Marcus Camby hjá Denver Nuggets, er fingurbrotinn og þarf að fara í aðgerð. Það er því ljóst að enn bætast menn á langan meiðslalista liðsins, sem þegar hefur misst einn mann út tímabilið og nokkra aðra í 6-10 leiki. Camby hirti um 12,9 fráköst að meðaltali í leik, auk þess að skora 16 stig og verja yfir 3 skot, svo meiðsli hans eru liðinu mikil blóðtaka. Sport 29.12.2005 15:38
45 stig frá Bryant dugðu skammt Kobe Bryant skoraði 45 stig fyrir LA Lakers í nótt þegar liðið tapaði naumlega 100-99 fyrir Memphis í framlengingu á heimavelli sínum. Damon Stoudamire skoraði 25 stig og gaf 9 stoðsendingar fyrir Memphis. Sport 29.12.2005 13:26
Nash íþróttamaður ársins í Kanada Leikstjórnandinn Steve Nash hjá Phoenix Suns var í gær kjörinn íþróttamaður ársins í Kanada með fádæma yfirburðum. Nash var kjörinn verðmætasti leikmaður NBA deildarinnar á liðnu vori og var fyrsti Kanadamaðurinn til að hljóta þann heiður. Íshokkí er að sjálfssögðu langvinsælasta íþróttagreinin í Kanada, en þetta er engu að síður í annað sinn sem Nash hlýtur þessi verðlaun. Sport 28.12.2005 14:41
Abdur-Rahim kjálkabrotinn Framherjinn Shareef Abdur-Rahim hjá Sacramento Kings verður frá keppni í nokkrar vikur eftir að hafa kjálkabrotnað í leik gegn Portland Trailblazers á mánudagskvöldið. Rahim hélt áfram að spila eftir að hafa fengið högg í andlitið frá Bonzi Wells hjá Portland, en röntgenmyndataka í dag leiddi í ljós að hann er brotinn. Þetta eru ekki góð tíðindi fyrir Sacramento, sem hefur gegnið illa í vetur. Sport 28.12.2005 16:52
Houston gat ekki án McGrady verið Houston Rockets tapaði enn einum leiknum á heimavelli sínum í nótt, þegar liðið lá gegn Utah Jazz 82-74. Ekki bætti úr skák að besti leikmaður liðsins, Tracy McGrady, þurfti að yfirgefa leikvöllinn í hálfleik til að keyra á fæðingardeildina, þar sem kona hans eignaðist barn. Lið Houston var yfir þegar hann fór, en leikur liðsins hrundi eftir það og leikurinn tapaðist. Sport 28.12.2005 13:41
Ron Artest sveik mig Körfuboltagoðsögnin Larry Bird, sem gegnir embætti forseta Indiana Pacers, hefur nú fyrst tjáð sig opinberlega um uppátæki Ron Artest á dögunum, þegar hann fór fram á að verða skipt frá félaginu og lagði þar með grunninn að því að eyðileggja tímabilið fyrir liðinu líkt og í fyrra. Sport 27.12.2005 13:35
Shaq í súmóglímu Pat Riley, forseti og þjálfari Miami Heat, íhugar nú alvarlega að ráða til sín súmóglímumenn til að kljást við tröllið Shaquille O´Neal á æfingum, því honum þykir rétt að búa O´Neal betur undir þau slagsmál sem hann lendir í daglega í NBA deildinni. Sport 27.12.2005 14:32
Sjötti sigur Cleveland í röð Cleveland Cavaliers vann sinn sjötta leik í röð í NBA deildinni í nótt þegar liðið hafði betur gegn Chicago Bulls á heimavelli sínum 102-91. LeBron James skoraði 32 stig fyrir Cleveland, en Tyson Chandler, Andres Nocioni og Chris Duhon skoruðu allir 15 stig fyrir Chicago, sem er í miklum vandræðum þessa dagana. Sport 27.12.2005 12:56
Bryant ætlar á Ólympíuleikana Hinn skotglaði Kobe Bryant hjá LA Lakers hefur tilkynnt að hann ætli að gefa kost á sér í landslið Bandaríkjanna í körfubolta fyrir Ólympíuleikana í Peking árið 2008. Þetta kemur fram í LA Times um helgina, en Bryant á að hafa fundað með Jerry Colangelo, framkvæmdastjóra landsliðsins, og tekið þessa ákvörðun í framhaldinu. Sport 26.12.2005 01:57
Lítið jólaskap í Kobe og Shaq Annað árið í röð mættust fyrrum félagarnir Kobe Bryant og Shaquille O´Neal að kvöldi jóladags með liðum sínum LA Lakers og Miami Heat. Shaq og félagar höfðu betur í gærkvöldi eins og í fyrra 97-92. Þá mættust liðin sem léku til úrslita í fyrra, Detroit Pistons og San Antonio Spurs í Detroit, þar sem heimamenn höfðu betur 85-70. Sport 26.12.2005 00:53
Kobe og Shaq kljást á jólunum Það er engu líkara en að forráðamenn NBA deildarinnar séu með afbrigðum kaldhæðnir, því annað árið í röð mætast fyrrum liðsfélagarnir og erkifjendurnir Shaquille O´Neal og Kobe Bryant í leik að kvöldi jóladags. Leikur Miami Heat og LA Lakers verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn klukkan 20:30 á jóladag. Sport 23.12.2005 16:32
Skelfilegt gengi hjá Leverkusen Hvorki gengur né rekur hjá liði Leverkusen í þýsku úrvalsdeildinni í körfubolta, en landsliðsmaðurinn Jakob Sigurðarson leikur með liðinu. Liðið tapaði enn einum leiknum sínum í gærkvöldi, nú fyrir Nurnberg 83-80 á heimavelli sínum. Jakob kom lítið við sögu í leiknum, en þetta var níunda tap Leverkusen í síðustu tíu leikjum og ljóst að botnbaráttan er það sem koma skal hjá liðinu ef gengi þess lagast ekki. Sport 23.12.2005 11:44
Nowitzki og James heitir Tveir leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Cleveland vann góðan útisigur á Chicago á útivelli 108-100, þar sem LeBron James skoraði 37 stig fyrir Cleveland, en Ben Gordon var með 22 stig fyrir Chicago. Dallas lagði Sacramento á útivelli 105-95. Dirk Nowitzki skoraði 37 stig fyrir Dallas, en Mike Bibby skoraði 22 stig fyrir Sacramento. Sport 23.12.2005 10:59
Sacramento tekur á móti Dallas Leikur Sacramento Kings og Dallas Mavericks verður sýndur beint á NBA TV í nótt. Staða þessara liða er mjög ólík, því lið Sacramento á mjög erfitt uppdráttar í vetur, liðið fékk til sín marga nýja leikmenn í sumar og svo hafa meiðsli sett svip sinn á leik liðsins. Allt gengur hinsvegar í haginn hjá Dallas, sem hefur náð frábærum árangri þrátt fyrir að hafa enn ekki geta stillt upp sínu sterkasta liði í vetur. Sport 22.12.2005 18:49
Reglur Naismith til sölu Barnabörn Dr. James Naismith, mannsins sem fann upp körfuknattleik árið 1891, hafa nú ákveðið að selja upprunalegu reglurnar sem afi þeirra skrifaði fyrir leikinn á sínum tíma. Þær fást svo sannarlega ekki gefins, því börnin fara fram á tíu milljónir dollara fyrir herlegheitin. Sport 22.12.2005 16:12
Artest verður hjá Indiana fram yfir jól Vandræðagemlingurinn Ron Artest hjá Indiana Pacers verður hjá liðinu fram yfir hátíðar, en forráðamenn félagsins segjast bjartsýnir á að geta skipt honum í burtu strax eftir jól. Artest er sagður hafa dregið kröfu sína um að verða skipt frá liðinu til baka, en þolinmæði Indiana er einfaldlega á þrotum og víst þykir að hann hafi spilað sinn síðasta leik með liðinu. Sport 22.12.2005 15:59
Indiana sigraði LA Clippers Indiana sigraði LA Clippers í nótt 97-75 á heimavelli sínum og færði Clippers fjórða tap sitt í síðustu fimm leikjum sínum. Stephen Jackson var stigahæstur í liði Indiana Pacers með 24 stig, en Elton Brand skoraði 29 stig hjá Clippers. Sport 22.12.2005 13:25
Kirilenko meiddur Rússneski framherjinn Andrei Kirilenko hjá Utah Jazz lék spilaði ekki með liði sínu í nótt vegna bakmeiðsla sem hann hlaut í leik gegn Milwaukee í byrjun vikunnar og verður væntanlega ekki með liðinu í næstu leikjum. Lið Utah hefur verið einstaklega óheppið með meiðsli í vetur sem og í fyrravetur, en meiðslalisti liðsins hefur verið langur síðan í fyrra haust. Sport 21.12.2005 19:46
Kobe Bryant skoraði 62 stig í þremur leikhlutum Kobe Bryant fór hamförum með liði LA Lakers í auðveldum 112-90 sigri á Dallas, þar sem hann skoraði 62 stig í aðeins þremur leikhlutum og setti á svið einhverja mestu skotsýningu í sögu deildarinnar. Hann skoraði 30 stig í þriðja leikhlutanum einum, en það er það mesta í einum fjórðung í sögu LA Lakers og Bryant hafði skorað fleiri stig eftir þrjá fjórðunga en allt Dallas-liðið til samans. Sport 21.12.2005 12:16
Yao Ming verður frá í nokkrar vikur Kínverski risinn Yao Ming hjá Houston Rockets verður frá keppni í nokkrar vikur eftir að hafa farið í aðgerð vegna sýkingar í stórutánni á vinstra fæti. Þetta er mikið áfall fyrir Houston, sem hafði þurft að vera án Tracy McGrady í nokkra leiki á dögunum og gekk vægast sagt illa án hans. Ming hafði aðeins misst úr tvo leiki á ferlinum áður en þessi meiðsli komu upp og skorar að meðaltali 20 stig og hirðir 9 fráköst í leik. Sport 20.12.2005 20:30