Glódís samþykkti að taka lokavíti Bayern
Glódís Perla Viggósdóttir er fyrirliði bæði íslenska landsliðsins og Bayern München. Hún er á toppi þýsku deildarinnar og komin í úrslitaleik þýska bikarsins eftir sigur gegn Frankfurt í vítaspyrnukeppni í undanúrslitum, þar sem Glódís átti að taka fimmtu spyrnu Bayern.