Alexandra ánægð með að spilað verði á Kópavogsvelli
Ísland mætir Póllandi á föstudaginn kemur í fyrsta leik liðsins í undankeppni fyrir EM 2025 sem fram fer í Sviss. Miðjumaðurinn Alexandra Jóhannsdóttir er nokkuð brött og finnst allt í góðu að leikurinn fari fram á Kópavogsvelli enda var hún lengi vel í röðum Breiðabliks.