Innlent

Bjark­ey ekki undir feldi

Árni Sæberg og Heimir Már Pétursson skrifa
Bjarkey Olsen styður Svandísi heilshugar.
Bjarkey Olsen styður Svandísi heilshugar. Vísir/Sigurjón

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til formanns Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs.

Þetta staðfesti hún í samtali við fréttastofu að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun. Skömmu áður hafði Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra tilkynnt að hún myndi gefa kost á sér í formannssætið á landsfundi, sem hefst eftir tíu daga.

Bjarkey segir að hún styðji Svandísi heilshugar, hún hafi verið lengi í pólitík og hún telji hana sterkan kandídat fyrir Vinstri græn til þess að sækja traustið til þess hóps sem fjarað hafi undan á undanförnum árum.

Skráning á landsfundinn bendi til þess að fólki finnist mikilvægt að Vinstri græn nái inn á Alþingi að loknum kosningum. Fólki sé ekki sama.

Kosningar í vor hafi ekki verið ræddar

Svandís segist telja það eðlilegast ef kosið yrði strax í vor og nýhafinn þingvetur yrði sá síðasti á kjörtímabilinu.

Bjarkey segir það ekki hafa verið rætt sérstaklega í ríkisstjórninni hvort boðað verði til kosninga í vor í stað næsta hausts.

„Það hefur oft verið talað um það að það sé betra að kjósa að vori en að hausti. Við verðum bara að sjá til hvort það verði niðustaðan.

Ríkisstjórnarsamstarfið flókið

Verða heitar umræður um ríkisstjórnarsamstarfið á sjö ára afmæli þess á landsfundinum?

„Það væri óeðlilegt ef það verða ekki sterk skoðanaskipti, eins og alltaf á milli Vinstri grænna. Við höfum sem betur fer borið gæfu til þess að geta talað saman hreint út um erfið mál. Þetta ríkisstjórnarsamstarf hefur sannarlega verið mjög flókið á köflum, svo vægt sé til orða tekið.“

Þá segir hún að Vinstri græn hafi alls ekki náð öllum sínum málum fram í samstarfinu. Til að mynda sé fjöldi mála undir hjá henni í sjávarútveginum sem hún myndi vilja sjá klárast í vetur. 

„Nei, nei. Við erum ekki búin.“


Tengdar fréttir

Jó­dís fer fram gegn Guð­mundi Inga í vara­for­mann VG

Jódís Skúladóttir þingkona Vinstri grænna gefur kost á sér í embætti varaformanns Vinstri grænna sem fer fram á landsfundi flokksins þarnæstu helgi. Jódís fer þannig fram gegn sitjandi formanni, Guðmundi Inga Guðbrandssyni, sem tilkynnti fyrr í dag að hann ætli sér ekki að sækja eftir embætti formanns en vilji vera varaformaður, líkt og hann var.

Býður sig ekki fram til formanns og styður Svandísi

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra og starfandi formaður Vinstri grænna (VG) ætlar ekki að gefa kost á sér í formannssætið á komandi landsfundi. Í stað þess vill hann sjá Svandísi Svavarsdóttur innviðaráðherra og þingmann VG leiða flokkinn en hún hefur ekki tilkynnt framboð. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×