Fótbolti

Fylkir með fullt hús stiga eftir sigur á KR

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Fylkir er með fullt hús stiga í Reykjavíkurmótinu.
Fylkir er með fullt hús stiga í Reykjavíkurmótinu. Vísir/Daníel

Tveir leikir fóru fram í A-riðli Reykjavíkurmóts kvenna. Fylkir vann 1-0 og þá vann Fjölnir einnig 1-0 sigur gegn Víking.

Bryndís Arna Níelsdóttir skoraði eina mark leiksins er Fylkir varð fyrsta liðið til að leggja KR af velli. Markið kom á 9. mínútu leiksins og því bjuggust áhorfendur ef til vill við marakveislu í kjölfarið. Sú varð ekki raunin og lokatölur 1-0 Fylki í vil.

Sama var upp á teningnum hjá Fjölni en Sara Moreno skoraði eina mark Fjölnisstúlkna í dag. Báðir leikirnir fóru fram í Egilshöllinni á gervigrasi sem hefur verið mikið í umræðunni undanfarið.

Var þetta fyrsta tap KR og fyrsti sigur Fjölnis á Reykjavíkurmótinu. KR er því áfram í 2. sæti með níu stig eftir fjóra leiki en Fylkir er eina liðið með fullt hús stiga eða 12 talsins. Fjölnir er hins vegar með þrjú stig og Víkingur Reykjavík vermir botnsætið með 0 stig.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×