Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2024
8 9 10 11 12 13 14 15 16 … 16 ›
Trump aftur sektaður fyrir að brjóta gegn fyrirmælum dómarans Dómari í New York hefur sektað Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, um 10.000 dollara fyrir að brjóta gegn fyrirmælum hans um að tjá sig ekki opinberlega um starfsmenn réttarins. Erlent 26.10.2023 08:24
Stuðningurinn við Ísrael og Úkraínu sé skynsamleg fjárfesting til framtíðar Joe Biden Bandaríkjaforseti ávarpaði Bandaríkjamenn frá skrifstofu sinni í Hvíta húsinu í gær og biðlaði til þeirra um að hverfa ekki frá hlutverki sínu sem „leiðarljós“ heimsins. Erlent 20.10.2023 06:32
Játar og gæti borið vitni gegn Trump Lögmaðurinn Sydney Powell, sem tók virkan þátt í tilraunum Donalds Trump, fyrrverandi forseta, við að reyna að snúa úrslitum forsetakosninganna 2020, hefur gengist við brotum sínum í Georgíu. Hún hefur gert samkomulag um að bera vitni gegn öðrum sakborningum, þeirra á meðal Trump, og var dæmd á sex ára skilorð. Erlent 19.10.2023 15:29
Ver fúlgum fjár í lögmenn Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, halar inn peningum frá stuðningsmönnum sínum en ver stórum hluta peninganna í lögfræðingakostnað. Á sama tíma aflar hann fjár á grundvelli dómsmála gegn honum. Erlent 18.10.2023 08:14
Dómari bannar Trump að tjá sig opinberlega um starfsmenn dómsins Dómari í New York hefur skipað Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, að tjá sig ekki um starfsmenn dómstólsins eftir að Trump birti færslu á Truth Social þar sem hann gerði lítið úr einum þeirra. Erlent 4.10.2023 07:11
McCarthy steypt af stóli í sögulegri atkvæðagreiðslu Kevin McCarthy, forseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, hefur verið vikið úr embætti sínu eftir atkvæðagreiðslu sem fram fór í dag í kjölfar vantrauststillögu sem lögð var fram á hendur honum í gær. Erlent 3.10.2023 22:32
Staðfestir niðrandi ummæli Trumps um hermenn John Kelly, fyrrverandi starfsmanna stjóri Hvíta húss Donalds Trump, gagnrýndi forsetann fyrrverandi harðlega í ummælum sem opinberuð voru í gær. Kelly staðfesti nokkur af umdeildum ummælum Trumps um særða og handsamaða hermenn. Erlent 3.10.2023 11:47
Gaetz leggur fram sögulega tillögu til höfuðs flokksbróður sínum Þingmaðurinn Matt Gaetz hefur lagt fram tillögu um að flokksbróðir hans Kevin McCarthy verði fjarlægður úr embætti forseta fulltrúadeildar bandaríska þingsins eftir að síðarnefndi reiddi sig á stuðning Demókrata til að koma fjárlögum í gegn um helgina. Erlent 3.10.2023 07:36
Samþykktu bráðabirðgafjárlög á síðustu stundu Bandarískir þingmenn samþykktu á síðustu stundu í nótt nýtt fjárlagafrumvarp til bráðabirgða og komu þannig í veg fyrir lokun opinberra stofnanna. Sú lokun átti formlega að hefjast á miðnætti í nótt, að staðartíma, og hefur verið frestað um 45 daga. Fjárlögin nýju gætu kostað forseta fulltrúadeildarinnar embættið. Erlent 1.10.2023 08:05
Lítið nýtt á „hörmulegum“ fundi um Biden Repúblikanar héldu í gær fyrsta nefndarfundinn um rannsókn þeirra á Joe Biden, forseta Bandaríkjanna, varðandi mögulega ákæru fyrir embættisbrot. Fundurinn stóð yfir í rúma sex tíma en ekkert nýtt kom fram sem gaf til kynna að Biden hefði brotið af sér í starfi eða væri sekur um spillingu. Erlent 29.9.2023 11:04
Biden segir Trump og stuðningsmenn hans beina ógn við lýðræðið Joe Biden Bandaríkjaforseti segir Bandaríkin standa á krossgötum og að MAGA-hreyfing Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, sé bein ógn við lýðræði landsins. Erlent 29.9.2023 08:06
DeSantis og Christie gagnrýndu Trump fyrir að vera fjarri góðu gamni Sjö frambjóðendur í forvali Repúblikana fyrir forsetakosningarnar á næsta ári mættust í kappræðum í gærkvöldi. Donald Trump var ekki þeirra á meðal og var gagnrýndur fyrir að taka ekki þátt. Erlent 28.9.2023 06:43
McCarthy enn í gíslingu uppreisnarmanna Fulltrúadeild Bandaríkjaþings er enn lömuð vegna uppreisnar hóps fjar-hægri þingmanna Repúblikanaflokksins. Einungis fimm dagar eru í að stöðva þarf rekstur ríkisins, finnist ekki samkomulag um fjárlagafrumvarp. Erlent 26.9.2023 10:04
McCarthy í basli og þingið lamað Kevin McCarthy, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, mistókst í gær að koma frumvarpi um fjárveitingar til varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna í gegnum þingið. Hópur öfgafullra þingmanna Repúblikanaflokksins kom í veg fyrir að frumvarpið yrði tekið til umræðu og er útlit fyrir algera lömun á þingi. Erlent 20.9.2023 13:53
Repúblikanar herða tökin í mikilvægum ríkjum Repúblikanar í Wisconsin og Norður-Karólínu í Bandaríkjunum vilja breyta því hvernig kosningum er stjórnað í ríkjunum. Bæði ríkin eru svokölluð sveifluríki og þykja því gífurlega mikilvæg þegar kemur að forsetakosningunum á næsta ári. Erlent 18.9.2023 11:54
Hunter Biden ákærður Alríkissaksóknarar hafa gefið út ákæru á hendur Hunter Biden, syni Joe Biden Bandaríkjaforseta, þar sem hann er sagður hafa komist ólöglega yfir skotvopn í október árið 2018, eftir að hafa logið til um að neyta ekki né vera háður fíkniefnum. Erlent 15.9.2023 07:10
Hefja formlega rannsókn á Biden Kevin McCarthy, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, tilkynnti í dag að opnuð yrði formleg rannsókn sem beinist að Joe Biden, forseta, og ætlað væri að kanna hvort tilefni væri til að ákæra hann fyrir embættisbrot. Rannsóknin á að beinast að viðskiptaumsvifum fjölskyldu Bidens. Erlent 12.9.2023 20:17
Vill að dómarinn stígi til hliðar Lögmenn Donalds Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, hafa lagt fram kröfu um að dómarinn Tanya Chutkan stígi til hliðar. Það á hún að gera á þeim grundvelli að hún hafi sýnt fram á óhlutlægni í garð Trumps. Erlent 11.9.2023 22:53
Samskip, bandarískar forsetakosningar og samgöngusáttmáli Fyrsti gestur Kristján Kristjánssonar á Sprengisandi í dag verður Hörður Felix Harðarson, sem hefur verið lögmaður Samskipa frá upphafi. Forsvarsmenn fyrirtækisins halda því fram fullum fetum að Samkeppniseftirlitið sé á villigötum í mörg þúsund blaðsíðna greinargerð um samkeppnisbrot fyrirtækisins. Innlent 10.9.2023 09:40
Lögðu einnig til að ákæra Lindsay Graham og fleiri Meðlimir svokallaðs ákærudómstóls í Georgíu í Bandaríkjunum lögðu til að töluvert fleiri yrðu ákærðir með Donald Trump fyrir að reyna að breyta úrslitum forsetakosninganna 2020 í ríkinu. Trump og átján aðrir hafa verið ákærðir en einnig var lagt til að Lindsey Graham, öldungadeildarþingmaður, Kelly Loeffler og David Perdu, fyrrverandi öldungadeildarþingmenn, og Micheal Flynn, þjóðaröryggisráðgjafi Trumps, yrðu ákærð vegna málsins. Erlent 8.9.2023 16:49
Krefjast fyrirvara ef átt er við hljóð eða mynd í kosningaauglýsingum Tæknirisinn Google ætlar að skikka þá sem kaupa kosningaauglýsingar á Google eða Youtube til þess að merkja þær skilmerkilega ef átt er við hljóð eða myndefni með gervigreind í þeim. Gervigreindarmyndefni er þegar byrjað að birtast í kosningaauglýsingum vestanhafs. Viðskipti erlent 7.9.2023 14:38
Freista þess að tryggja að nafn Trump rati ekki á kjörseðla Sex kjósendur í Colorado í Bandaríkjunum hafa höfðað mál til að freista þess að koma í veg fyrir að nafn Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta og núverandi forsetaframbjóðanda, nái inn á atkvæðaseðilinn í ríkinu fyrir forsetakosningarnar á næsta ári. Erlent 7.9.2023 09:12
Boðar nýja ákæru á hendur syni Biden Sérstakur rannsakandi bandaríska dómsmálaráðuneytisins segist stefna að því að gefa út nýja ákæru á hendur Hunter Biden, syni Bandaríkjaforseta, fyrir lok þessa mánaðar. Biden hafði áður samþykkt að játa sig sekan um skatta- og skotvopnalagabrot en sáttinni var spillt í sumar. Erlent 7.9.2023 08:50
Sýnt frá réttarhöldunum í beinni í sjónvarpi og á YouTube Dómari í Bandaríkjunum hefur ákveðið að sýnt verður beint frá réttarhöldunum yfir Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, og þeim átján til viðbótar sem hafa verið ákærðir fyrir að reyna að hafa áhrif á niðurstöður forsetakosninganna í Georgíu árið 2020. Erlent 1.9.2023 06:58
Reiði beinist að DeSantis Eftir að ungur rasisti myrti þrjár svartar manneskjur í Jacksonville í Flórída um helgina hafa margir reiðst Ron DeSantis, ríkisstjóra. Fyrir árásina hafði hann verið sakaður um að skapa andrúmsloft haturs gegn svörtum Bandaríkjamönnum og öðru þeldökku fólki og reiðin hefur aukist eftir árasina. Erlent 29.8.2023 13:29
„Almenningur á rétt á að þetta mál sé tekið fyrir hratt og örugglega“ Réttarhöldin í máli sérstaks saksóknara dómsmálaráðuneytisins gegn Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, munu hefjast þann 4. mars á næsta ári. Þetta er eitt af fjórum dómsmálum gegn Trump og tveimur sem Jack Smith, áðurnefndur saksóknari, hefur höfðað gegn honum. Erlent 28.8.2023 16:06
Græddi tæpan milljarð á fangamyndinni Myndin sem tekin var af Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, þegar hann gaf sig fram í Fulton sýslu á fimmtudag, hefur með varningssölu skilað 7,1 milljón Bandaríkjadala í kosningasjóð Trump. Erlent 27.8.2023 13:39
Óvíst að upplýsingar um þyngd og hæð séu réttar Óvíst er að upplýsingar um þyngd og hæð Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, sem skráðar voru þegar hann gaf sig fram í fangelsinu í Fulton-sýslu í Atlanta í gær séu réttar, að því er fram kemur í umfjöllun Washington Post. Erlent 25.8.2023 10:39
Trump handtekinn í tugthúsinu Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur verið formlega handtekinn í Fulton-sýslu í Atlanta í Bandaríkjunum. Þar hefur hann og átján bandamenn hans verið ákærðir vegna tilrauna þeirra til að snúa niðurstöðum forsetakosninganna í ríkinu árið 2020. Erlent 25.8.2023 00:02
Stuðningsmenn Trumps bíða við fangelsið í Fulton-sýslu Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, mun gefa sig fram við lögreglu í Fulton-sýslu í Georgíu í kvöld. Mikill fjöldi stuðningsmanna forsetans hefur þegar komið sér fyrir við fangelsið þar sem Trump ætlar að gefa sig fram á tólfta tímanum í kvöld. Erlent 24.8.2023 18:47