Ályktun um stjórnarslit á dagskrá hjá VG Tómas Arnar Þorláksson skrifar 24. september 2024 23:32 Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar fyrir utan Bessastaði. Vísir/Vilhelm „Landsfundur Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, haldinn í Reykjavík 4. til 6. október 2024 ályktar að tímabært sé að horfa til þess að slíta ríkisstjórnarsamstarfi við Sjálfstæðisflokk og Framsóknarflokk.“
Þetta kemur fram í ósamþykktum drögum að ályktunum fyrir landsfund Vinstri Grænna frá málefnahópum og félögum til umræðu og afgreiðslu á landsfundi Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. . Þar segir að ríkisstjórnin hafi upphaflega verið mynduð árið 2017 í kjölfar óvæntra kosninga og í skugga pólitísk óróa. Tekið er fram að festa hafi komist á undir forystu VG en nú séu hins vega brýn verkefni fram undan og mat landsfundar að ekki sé unnt að takast á við þau í núverandi stjórnarsamstarfi. Sjálfstæðisflokkurinn tryggi hagsmuni fjármagnsins Andrés Skúlason, Auður Alfífa Ketilsdóttir, Einar Ólafsson, Guðrún Margrét Guðmundsdóttir, Halla Gunnarsdóttir, Helgi Hlynur Ásgrímsson, Saga Kjartansdóttir, Steinunn Rögnvaldsdóttir og Sveinn Máni Jóhannesson eru undirrituð fyrir ályktuninni. Andrés og Helgi Hlynur sitja í stjórn VG. „Hvort sem litið er til náttúruverndar, samfélagsmála eða efnahagsstjórnar þá er það svo að samstarfsflokkar hreyfingarinnar í ríkisstjórn, og þá einkum Sjálfstæðisflokkurinn, hafa að of miklu leyti farið þá leið að tryggja hagsmuni fjármagnsins, á kostnað almennings. Lausna er leitað í einkavæðingu, niðurskurðarstefnu og óheftri stóriðjustefnu, sem allt gengur gegn stefnu Vinstri grænna. Samhliða hefur Sjálfstæðisflokkurinn áfellst fólk fyrir að flýja stríð og gert innflytjendur almennt að blóraböggli fyrir slæmri efnahagsstjórn og vanrækslu innviða,“ segir í ályktuninni. Hvetja til þess að boðið verði til kosninga Við þessu verður ekki unað að mati undirritaðra og tekið fram að hreyfingin geti ekki átt aðild að ríkisstjórnarsamstarfi þar sem ólíklegt sé að hægt verði að takast á við knýjandi verkefni framundan. „Landsfundur hvetur því til þess að boðað verði til kosninga. Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs áréttar stefnu hreyfingarinnar og býður upp á framtíðarsýn fyrir Ísland þar sem fólk er sett í fyrsta sæti og fjármagnið látið mæta afgangi. Hvort sem Vinstri græn verða innan eða utan ríkisstjórnar eftir næstu kosningar mun hreyfingin hafna einkavæðingu og útlendingaandúð og vinna að mannréttindum, kvenfrelsi og félagslegu réttlæti.“
Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar Vinstri græn Mest lesið Varar við viðskiptum við Öskju eftir miklar hrakfarir Innlent Banaslys við Fossá Innlent Skyldur vinnuveitenda gífurlegar í erfiðum málum Innlent „Við getum ekki treyst Hagkaup í Skeifunni fyrir unglingunum“ Innlent Ályktun um stjórnarslit á dagskrá hjá VG Innlent Móðir ákærð fyrir stórfellda líkamsárás Innlent Smíði Ölfusárbrúar í uppnámi vegna skilyrðis fyrir ríkisábyrgð Innlent „Þegar ég hugsa til baka þá fæ ég bara kökk í hálsinn“ Innlent Erlend glæpagengi fá Íslendinga til að ræna reiðhjólaverslanir Innlent Blöskrar framkoma sérsveitar og afskiptasemi nágranna Innlent Fleiri fréttir Varar við viðskiptum við Öskju eftir miklar hrakfarir Ályktun um stjórnarslit á dagskrá hjá VG Skyldur vinnuveitenda gífurlegar í erfiðum málum Staðan miklu alvarlegri þegar vígvöllurinn er stærri Móðir ákærð fyrir stórfellda líkamsárás Smíði Ölfusárbrúar í uppnámi vegna skilyrðis fyrir ríkisábyrgð „Við getum ekki treyst Hagkaup í Skeifunni fyrir unglingunum“ „Þegar ég hugsa til baka þá fæ ég bara kökk í hálsinn“ Banaslys við Fossá Erlend glæpagengi fá Íslendinga til að ræna reiðhjólaverslanir Miðflokkurinn marktækt stærri en Sjálfstæðisflokkurinn Tíðindi í glænýrri könnun, innbrotafaraldur og biðin sem sligar fjölskyldur Fjögur í varðhaldi vegna innbrota í Elko Tveir í bílnum sem ók út af Nokkur vitni að banaslysi við Brúará Stefnt að hertara eftirliti á landamærunum í nóvember Inga skellihló að Sigurði Inga Útsvarsaukningin aðeins hugsuð til tveggja ára Skerða orku til stórnotenda Alvarlegt umferðarslys við Fossá á Skaga Segir fjármálaráðherra ekki kunna að reikna Blöskrar framkoma sérsveitar og afskiptasemi nágranna Tveir hafa játað sök í stóra fíkniefnamálinu sem fer ekki fet Verður formaður stjórnar Matvælasjóðs Faðirinn ekki lengur í einangrun Þurfi að komast út úr kjarasamningum „með góðu eða illu“ Landris og kvikusöfnun heldur áfram Sigurður Ingi segir skort á sálfræðingum vandamál Baldur greiddi fjórðung kostnaðar við framboð sitt sjálfur Maðurinn fannst látinn Sjá meira