Bílar

Nýr Hyundai i30 frumsýndur

Finnur Thorlacius skrifar
Hyundai i30.
Hyundai i30.
Hyundai við Kauptún í Garðabæ frumsýnir nýjan og breyttan Hyundai i30 nk. laugardag, 18. apríl milli kl. 12 og 16.

Það sem breyst hefur í i30 er til að mynda endurhannaður framendi með nýju grilli, auk þess sem tíu arma álfelgur og LED skreytingar í þokuljósum er nú staðalbúnaður í Comfort útgáfum i30. Nú eru allar gerðir i30 með upphitað stýri og framsæti og handfrjálsan símabúnað.

Auk þess eru sjálfvirk hornljós í aðalljósum staðalbúnaður, en þau kvikna um leið og bílnum er beygt og lýsa ljósin þá inn í það horn sem beygt er í til að auka yfirsýn og öryggi í akstri. Þá er meðal nýjunga tveggja kúplinga 7 þrepa sjálfskipting í Hyundai i30 sem eykur afl- og eldsneytisnýtingu bílsins auk þess að gera hann enn skemmtilegri í akstri.

Nýju i30 bílanir eru fáanlegir með 1,4 l bensín- eða dísilvél í Classic útgáfu og 1,6 l bensín- eða dísilvél í Comfort útgáfu. Verð á nýjum Hyundai i30 er frá kr. 3.190.000.






×