Alþingi
288 289 290 291 292 293 294 295 296 … 297 ›
Samfylkingin tilnefnir síðust Samfylkingin hefur tilnefnt fulltrúa í nefnd um endurskipulagningu lagalegrar umgjarðar um stjórnmálastarfsemi á Íslandi, síðust flokka á Alþingi. Dregist hefur í meira en mánuð að halda fyrsta fund í nefndinni, þar sem beðið var tilnefningar frá Samfylkingunni, en nú er undirbúningur að starfsemi nefndarinnar hafinn. Innlent 13.10.2005 19:27
Ósætti í fjárlaganefnd Meirihluti fjárlaganefndar samþykkti í dag, í trássi við vilja stjórnarandstöðunnar, að hætta athugun á einkavæðingu bankanna. Stjórnarandstaðan segir mörgum spurningum enn ósvarað. Lúðvík Bergvinsson alþingismaður segir að stjórnarandstaðan muni nú íhuga hvort þess verði krafist að þing verði kallað saman vegna málsins. Innlent 13.10.2005 19:20
Setur ofan í við umboðsmann Landbúnaðarráðherra setur ofan í við umboðsmann Alþingis og segir ákveðna hluti í nýju áliti hans ekki vera í verkahring umboðsmanns eða á hans valdi. Innlent 13.10.2005 19:19
Telur að skipun rektors standi Umboðsmaður Alþingis telur að landbúnaðarráðherra, Guðni Ágústsson, hafi ekki verið vanhæfur til að ákveða hver skyldi skipaður í embætti rektors Landbúnaðarháskóla Íslands. Þá telur umboðsmaður ólíklegt að skipunin verði talin ógildanleg. Innlent 13.10.2005 19:19
Landbúnaðarstofnun á Suðurlandi? Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra segir að vilji sé til þess innan þingsins að ný Landbúnaðarstofnun verði staðsett utan höfuðborgarsvæðisins. Reykir í Ölfusi og Selfoss koma helst til greina. Innlent 13.10.2005 19:13
Hraðamet í afgreiðslu þingmála Alþingi fór í sumarleyfi skömmu fyrir miðnætti í gærkvöld eftir að Halldór Blöndal, fráfarandi þingforseti, hafði slegið hraðamet í afgreiðslu mála. Innlent 13.10.2005 19:12
Fyrningarfrumvarp ekki afgreitt Til snarpra orðaskipta kom á Alþingi fyrir stundu þegar Halldór Blöndal, forseti Alþingis, tilkynnti að framvarp Ágústs Ólafs Ágústssonar, þingmanns Samfylkingar, um afnám fyrningar á kynferðisbrotum gegn börnum yrði ekki afgreitt fyrir þinghlé eftir að breytingartillaga kom fram frá Jónínu Bjartmarz, þingmanni Framsóknarflokks. Innlent 13.10.2005 19:11
Sakaði stjórnarflokkana um svik Margir þingmenn gagnrýndu í dag að þinghald tæki mið af sauðburði á vorin og göngum og réttum á haustin. Ágúst Ólafur Ágústsson sakaði stjórnarflokkana um svik í morgun þegar frumvarp hans um afnám fyrningar kynferðisbrota fór ekki á dagskrá. Innlent 13.10.2005 19:12
Atkvæði greidd í dag Meirihluti Alþingis samþykkti nú fyrir hádegi að þrjú lagafrumvörp viðskiptaráðherra um breytingar á samkeppnislögum gengju til þriðju umræðu með þeim breytingum sem meirihluti nefndarinnar lagði til. Greidd verða atkvæði um lögin eftir hádegi í dag. Innlent 13.10.2005 19:11
Tillögur Gunnars felldar Breytingartillögur Gunnars Birgissonar, þingmanns Sjálfstæðisflokks, við samgönguáætlun samgönguráðherra á árunum 2005 til 2008 voru felldar á Alþingi skömmu fyrir hádegi. Þar er nú verið að ræða samgönguáætlunina. Innlent 13.10.2005 19:11
Tilraun til afvegaleiðingar Fjármálaráðherra hafnar því alfarið að ríkissjóður nýti sér upptöku olíugjalds til tekjuöflunar. Hann segir slíkan málflutning vera tilraun til að villa mönnum sýn og afvegaleiða. Innlent 13.10.2005 19:12
Mótmæli við Alþingishúsið Ungir jafnaðarmenn og ungliðahreyfingar úr öllum flokkum hafa boðað til mótmæla við Alþingishúsið klukkan 17.45 í dag. Ástæðan er ákvörðun forseta þingsins að hleypa ekki í gegnum þingið frumvarpi um afnám fyrningarfrests í kynferðisafbrotum gegn börnum. Innlent 13.10.2005 19:11
Þingmenn ekki óþekktarlýður Halldór Blöndal, forseti Alþingis, stýrði sínum síðasta þingfundi í kvöld. Aðspurður hvernig honum væri innanbrjósts fyrir lokasprettinn í starfinu sagði hann það vera mikinn létti yfir því að vorið væri að koma. Hann stefnir á að fara norður í sveitina strax á föstudag þar sem hann ætlar m.a. að ganga um bakka Laxár. Innlent 13.10.2005 19:12
Flokkarnir fá 295 milljónir Hið opinbera styrkir stjórnmálaflokkana um 295 milljónir á ári. Þetta kom fram í nýrri skýrslu forsætisráðherra sem rædd var á Alþingi í dag en þar er ekki tekið á styrkjum fyrirtækja og einstaklinga. Skýrslan var unnin að beiðni Jóhönnu Sigurðardóttur sem sagði að tekið hefði tvö ár að knýja hana í gegn. Innlent 13.10.2005 19:12
Bakka ekki með frumvörpin Forsætisráðherra segir að ríkisstjórnin bakki hvorki með frumvarp um samkeppnislög né hin um fjarskiptalögin og Ríkisútvarpið, þótt umdeild séu. Þingmenn ræddu breytingar á samkeppnislögum í allan gærdag þar til þingfundi var slitið um klukkan hálf sjö. Innlent 13.10.2005 19:10
Samkeppnislögin rædd eftir helgi Þingmenn ræddu breytingar á samkeppnislögum í allan gærdag þar til þingfundi var slitið um klukkan hálf sjö. Lengstu ræðurnar voru á þriðju klukkustund. Þrettán voru á mælendaskrá þegar fundi lauk og verður því umræðunni haldið áfram á mánudag. Innlent 13.10.2005 19:10
Héðinsfjarðargöng verði slegin af Samgönguáætlun Gunnars I. Birgissonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, gerir ráð fyrir því að Héðinsfjarðargöng verði slegin af en göng gerð frá Fljótum yfir á Siglufjörð. Gunnari þykir súrt í brotið að meirihluti stjórnarliða í samgöngunefnd samþykki að einungis fimmtungur fjár til vegaframkvæmda á næstu árum renni til suðvesturhornsins. Innlent 13.10.2005 19:10
Börnin stimpluð sem lyfjafíklar Þingmenn fá ákúrur frá foreldri barns sem gefið er rítalín vegna hegðunarvanda. Faðir stúlku, sem átt hefur við mikla ofvirkni að stríða frá sjö ára aldri, segir umræður um lyfjanotkun barna í þingsölum stimpla fólk í hans stöðu og börn þeirra sem lyfjafíkla og sníkjudýr í þjóðfélaginu. Innlent 13.10.2005 19:10
Hefndaraðgerðir stjórnvalda Stjórnarandstaðan kallar frumvarp til samkeppnislaga hefndaraðgerðir og varar við því að það verði samþykkt sem lög frá Alþingi. Í áliti minnihluta efnahags- og viðskiptanefndar segir að það veiki samkeppniseftirlit á Íslandi og að helstu sérfræðingar þjóðarinnar á þessu sviði vari við því. Innlent 13.10.2005 19:10
Samgönguáætlun samþykkt Meirihluti samgöngunefndar Alþingis samþykkti samgönguáætlun í gærkvöld. Búist er við að minnihlutinn skili séráliti í dag. Innlent 13.10.2005 19:10
Forseti Alþingis gagnrýndur Þingmenn stjórnarandstöðunnar gagnrýndu forseta Alþingis harðlega í upphafi þingfundar í morgun fyrir stefnuleysi í störfum þingsins; fjöldi mála lægi fyrir þinginu en samt væri stefnt að því að ljúka þingstörfum 11. maí. Sérlega sárnaði þingmönnum að vera kvaddir út á laugardegi en ekki var gert ráð fyrir því í starfsáætlun þingsins. Innlent 13.10.2005 19:10
Heldur áfram baráttunni Stjórnarmeirihlutinn samþykkti að afgreiða frumvarp um að kynferðisafbrot gegn börnum fyrntust ekki úr nefndinni með þeirri breytingu að kynferðisafbrot gegn börnum byrjuðu nú að fyrnast er þau ná 18 ára aldri en áður var miðað við 14 ár. Þingmaður Samfylkingar ætlar að halda áfram baráttunni því honum finnst ekki verið að veita börnum landsins nægilega réttarvernd með breytingartillögu meirihlutans. Innlent 13.10.2005 19:10
Fresturinn hefst við 18 ára aldur Meirihluti allsherjarnefndar Alþingis leggur til að fyrningarfrestur vegna kynferðisbrota gegn börnum hefjist við átján ára aldur en ekki fjórtán ára aldur eins og nú er. Nefndin afgreiddi frumvarpið í dag og klofnaði nefndin í afstöðu sinni. Innlent 13.10.2005 19:10
Fyrningarfrumvarp klauf nefnd Allsherjarnefnd klofnaði í afstöðu sinni til fyrningarfrumvarpsins svonefnda í gær og mun skila tveimur álitsgerðum. Jónína Bjartmarz studdi álit meiri hlutans með fyrirvara. Ágúst Ólafur Ágústsson segist ætla að berjast áfram. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:10
Slegnir yfir rítalínnotkun barna Landlæknir hætti að fylgjast með ávísunum á rítalín til barna og unglinga árið 2001. Þingmenn voru slegnir á Alþingi í dag yfir upplýsingum um umdeilt heimsmet íslenskra barna í notkun rítalíns. Innlent 13.10.2005 19:10
Stimpilgjöld ekki afnumin í vor Ekki er vilji hjá stjórnarflokkunum til að afgreiða frumvarp um afnám stimpilgjalda og endurfjármögnum lána á þessu þingi. Formaður efnahags- og viðskiptanefndar hafði þó lýst stuðningi við málið. Þingmaður Samfylkingarinnar segir sárt að þetta stóra hagsmunamál fjölskyldna náist ekki. Innlent 13.10.2005 19:09
Á móti frumvarpi um ný vatnalög Umhverfisstofnun leggst gegn frumvarpi Valgerðar Sverrisdóttur iðnaðarráðherra um ný vatnalög. Iðnaðarnefnd afgreiddi frumvarpið úr nefnd fyrir helgina og er önnur umræða um það fyrirhuguð á Alþingi. Innlent 13.10.2005 19:09
Óttast að sé verið að tefja málið "Ég óttast að það sé verið að tefja málið, fyrst í allsherjarnefnd og síðar uppi í ráðuneyti," sagði Ágúst Ólafur Ágústsson alþingismaður um frumvarp sem hann hefur lagt fram um afnám fyrningarákvæðis þegar um er að ræða kynferðisbrot gegn börnum undir 14 ára aldri. Innlent 13.10.2005 19:08
Má takmarka eftirlaun Í lögfræðiáliti sem Halldór Ásgrímsson lét vinna um breytingar á eftirlaunalögum ráðamanna kemur fram að heimilt er að takmarka eða fella niður eftirlaunaréttindi ráðamanna sem gegna launuðu starfi. Framsókn stefnir á frumvarp fyrir haustþing.</font /> Innlent 13.10.2005 19:07
Vara við áfengisfrumvörpum Félag áfengisráðgjafa varar eindregið við afleiðingum þess að frumvörp um lækkun áfengiskaupaaldurs og afnám einkasölu Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins, verði að lögum. Innlent 13.10.2005 19:07