Alþingi
287 288 289 290 291 292 293 294 295 … 297 ›
Holtasóley verður þjóðarblóm Ekkert virðist nú geta komið í veg fyrir að holtasóley verði valin þjóðarblóm Íslendinga. Landbúnaðarnefnd Alþingis hefur mælt með því við þingheimur samþykki þingsályktunartillögu í þessa veru. Innlent 11.4.2006 20:58
Vilja sérkjörin burt sem fyrst Engar efndir hafa orðið á því að eftirlaunalögum yrði breytt þó ár sé síðan forsætisráðherra lofaði að það yrði gert. Þetta sagði Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingar, á þingi í dag og deildi á forsætisráðherra sem sagði málið ekki stranda á sér. Innlent 11.4.2006 17:15
Engin ágreiningur um varnarmál Forsætisráðherra og utanríkisráðherra segja engan ágreining sín á milli um varnarmál. Stjórnarandstæðingar sökuðu utanríkisráðherra um að upplýsa ritstjóra Morgunblaðsins betur um gang varnarviðræðna við Bandaríkin en utanríkismálanefnd. Innlent 11.4.2006 16:01
Hart deilt á utanríkisráðherra Stjórnarandstæðingar deildu á utanríkisráðherra við upphaf þingfundar í dag fyrir að hafa ekki nægilegt samráð um gang mála í varnarviðræðum við Bandaríkin. Utanríkisráðherra sagði að það mætti ef til vill saka sig um margt en ekki þó það að hafa ekki nægilegt samráð við þingnefndir. Innlent 5.4.2006 15:58
Boðað til helgarfundar um vatnalög Þingheimur hefur verið boðaður saman til fundar á morgun til að ræða frumvarp til vatnalaga. Umræður um frumvarpið hafa þegar staðið yfir í rúman sólarhring og ganga ásakanirnar á víxl milli stjórnarliða og stjórnarandstæðinga. Innlent 10.3.2006 21:28
Viðgerðir á Þjóðleikhúsi næstar í röðinni Það myndi kosta 1,6 milljarða króna að gera þær viðgerðir á Þjóðleikhúsinu sem þörf krefur, sagði menntamálaráðherra á Alþingi í dag og setti viðgerðir á Þjóðleikhúsinu efstar á forgangslista þegar kemur að menningarstofnunum. Innlent 8.3.2006 16:17
Úr pólitík í bankann Fyrrum erfðaprins Framsóknarflokksins gekk af leikvelli stjórnmálanna í dag þegar forseti Íslands samþykkti afsögn hans sem félagsmálaráðherra á Ríkissráðsfundi í morgun. Eftir fundinn bað Árni flokksfélaga sína afsökunar á brotthvarfinu en sagði ástæður sínar persónulegar. Innlent 7.3.2006 17:34
Tekur sæti á þingi í lok apríl Guðjón Ólafur Jónsson sem tekur sæti Árna Magnússonar á þingi segist hafa orðið fyrir áfalli þegar honum varð ljóst að Árni Magnússon félagsmálaráðherra ætlaði að hætta á þingi og að hann sjálfur væri á leið á þing. Hann segir mikinn missi að Árna. Innlent 6.3.2006 17:50
Brotthvarf Árna veikir Framsókn Brotthvarf Árna Magnússonar af þingi og úr ráðherrastóli veikir Framsóknarflokkinn og Halldór Ásgrímsson, formann flokksins, segir Baldur Þórhallsson, dósent í stjórnmálafræði. Innlent 6.3.2006 17:53
Rúm fyrir álver og stækkun Forsætisráðherra gaf lítið fyrir hvatningar stjórnarandstæðinga um hægja á uppbyggingu álvera á Alþingi í dag. Hann sagði álver á Húsavík og stækkun í Straumsvík rúmast innan marka Kyoto bókunarinnar en efast um að orka fáist fyrir álver á Reykjanesi. Innlent 2.3.2006 16:51
Varamaður fyrir varamann Jón Kr. Óskarsson tók sæti á Alþingi sem varamaður við upphaf þingfundar í dag. Það væri ef til vill ekki í frásögur færandi nema fyrir það að hann tekur sæti á þingi í stað varaþingmannsins Söndru Franks, sem hafði áður verið kölluð inn á þing sem varamaður Rannveigar Guðmundsdóttur. Innlent 2.3.2006 10:33
Úrskurður Kjaradóms felldur úr gildi Alþingi samþykkti í dag frumvarp til laga sem fellir úr gildi úrskurð Kjaradóms frá 19. desember síðastliðnum um launahækkanir til æðstu stjórnenda ríkisins. Stjórnarandstaðan stóð gegn frumvarpinu og vildi fara aðra leið. Fulltrúar hennar telja að frumvarpið geti brotið í bága við stjórnarskrá. Innlent 20.1.2006 20:42
Alþingi kemur aftur saman Alþingi kemur saman til fundar í dag eftir 38 daga fundahlé í kringum jól og áramót. Fyrsta málið sem verður tekið fyrir á þingfundi sem hefst klukkan hálftvö verður frumvarp um að draga til baka launahækkanir Kjaradóms og ákvarða mönnum þess í stað tveggja og hálfs prósents launahækkun frá og með næstu mánaðamótum. Innlent 17.1.2006 07:45
Ríkisstjórnin klúðraði málinu Klúður er orðið sem stjórnarandstæðingar nota yfir viðbrögð ríkisstjórnarinnar við úrskurði kjaradóms. Þeir eru afar ósáttir við að forystumenn ríkisstjórnarinnar vildu ekki kalla þing saman til að fresta gildistöku launahækkunar þingmanna og ráðherra. Innlent 30.12.2005 16:32
Fordæmi fyrir að fella kjaradóm úr gildi Þingmenn hafa mælst til þess að Alþingi nemi síðustu launahækkun Kjaradóms þeim til handa úr gildi. Það yrði ekki í fyrsta skipti sem launahækkanir æðstu ráðamanna yrðu dregnar til baka með lagasetningu á Alþingi. Innlent 22.12.2005 12:03
Hart tekist á um fjárlög næsta árs á Alþingi Stjórnarliðar hrósuðu sér af meiri fjárlagaafgangi en flestar Evrópuþjóðir gætu státað af meðan stjórnarandstæðingar sögðu væntanleg fjárlög þýða útgjaldaþenslu og aukið misrétti í samfélaginu. Innlent 25.11.2005 23:06
Vandi heimilislausra ræddur á Alþingi í dag Um fimmtíu manns eru heimilislausir á Íslandi, samkvæmt nýrri skýrslu sem félagsmálráðherra kynnti á Alþingi í morgun. Félagsmálaráðherra segir lausn vera í sjónmáli fyrir um tuttugu hinna heimilislausu, og að unnið sé að lausn alls vandans. Innlent 18.11.2005 22:07
Nokkuð greiðfært um Alþingi í hjólastól Aðgengi fatlaðra um Alþingishúsið er ótrúlega gott, þótt enn megi bæta um betur, segir eini þingmaðurinn sem er í hjólastól. Innlent 18.11.2005 19:17
Nær fjórðungur fyrrum ráðherrar Sex fyrrum ráðherrar hafa verið skipaðir sendiherrar frá árinu 1995. Meirihluti sendiherra á þessu tímabili kemur þó úr störfum innan utanríkisþjónustunnar, eða fimmtán af 27 sendiherrum. Innlent 16.11.2005 18:07
Frjálshyggjan á hröðu undanhaldi Frjálshyggjan er á hröðu undanhaldi um allan heim, líka á Íslandi, sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingar á flokksstjórnarfundi í morgun. Hún sagði stjórnmálabaráttuna á Íslandi standa milli Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks. Innlent 12.11.2005 12:10
ASÍ óánægt með fjárlagafrumvarpið Miðstjórn ASÍ lýsir yfir vonbrigðum með þá efnahags-, atvinnu- og félagsmálastefnu sem birtist í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórarinnar. Innlent 23.10.2005 15:02
Talaði ekki um ógn verðbólgunnar Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra sagði í stefnuræðu sinni á Alþingi í gærkvöldi að aukning verðbólgu umfram spár mætti alfarið rekja til hækkunar á fasteignaverði og olíuverði. Hann vék hins vegar ekki að því að verðbólgan ógnar nú vinnufriði í landinu. Innlent 23.10.2005 15:02
Utandagskrárumræða um mál Arons Óskað hefur verið eftir utandagskrárumræðu á Alþingi í dag </font />um málefni Arons Pálma Ágústssonar. Ríkisstjórinn í Texas hafnaði í gær náðunarbeiðni Arons Pálma sem verið hefur um árabil í stofufangelsi í ríkinu. Innlent 23.10.2005 16:58
Einungis bundnir sannfæringu sinni Sigurður Líndal, lagaprófessor við Háskóla Íslands, segist efast stórlega um að erindi Frjálslynda flokksins varðandi þingsæti Gunnars Örlygssonar sé tækt til meðferðar hjá umboðsmanni Alþingis. Sigurður segir stjórnarskrána skýra hvað þetti varði. Þingmenn séu ekki bundnir öðru en eigin sannfæringu. Innlent 23.10.2005 15:02
Ummæli Magnúsar ekki svaraverð Sólveig Pétursdóttir, nýkjörinn forseti Alþingis, segir ummæli Magnúsar Þórs Hafsteinssonar, þingmanns Frjálslynda flokksins, um að henni sé ekki stætt á því að gegna embætti þingforseta meðan að eiginmaður hennar sæti rannsókn vegna olíusamráðsins, ekki svaraverð. Innlent 23.10.2005 15:02
Tölvan áhrifameiri en þingið? Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sagði í þingsetningarræðu sinni í dag að frjálsræði hvers og eins til að velja sér upplýsingar væri nú meira en nokkru sinni og forræði valdsmanna á fréttum og umræðuefnum nánast horfið. Hann sagði þessa þróun geta á margan hátt orðið lýðræðinu til aukins þroska. Þá velti forsetinn upp þeirri spurningu hvort tölvan væri orðin þingmönnum öflugra áhrifatæki en ræðustóll Alþingis. Innlent 23.10.2005 15:01
Alþingi Íslendinga sett Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, talaði meðal annars um lýðræði og þær breytingar sem orðið hafa á fréttaflutningi í ræðu sinni við setningu 132. löggjafarþings Íslendinga í gær. Innlent 23.10.2005 15:01
Sólveig nýr forseti Alþingis Sólveig Pétursdóttir var kjörin forseti Alþingis við setningu þess í gær. Hún þakkaði þingmönnum það traust sem þeir sýndu henni með því að kjósa hana. Innlent 23.10.2005 15:01
Árni segist aldrei hafa sagt ósatt Árni Magnússon félagsmálaráðherra segist aldrei hafa sagt Alþingi ósatt. Hann segir Íbúðalánasjóð ekki fara út fyrir lánaheimildir sínar og að sjóðurinn sé ekki að lána eftir tveimur leiðum, beint til lántakenda og til lántakenda í gegnum banka og sparisjóði. Innlent 13.10.2005 19:29
Nefndin komin á hreint Helstu hagsmunagæslumenn allra stjórnmálaflokkanna eiga sæti í nefnd sem Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra skipaði í gær til að fjalla um lagalega umgjörð stjórnmálastarfssemi á Íslandi og þar með aðgang að fjármálum flokkanna. Innlent 13.10.2005 19:28