Bílar

Hvernig gat ökuferðin endað svona?

Finnur Thorlacius skrifar
Magnaður endir ökuferðar.
Magnaður endir ökuferðar.
Á laugardaginn fyrir páska endaði ökuferð konu einnar í Tennessee í Bandaríkjunum svona og er erfitt að ímynda sér hvernig bíll hennar gat endað í nokkra metra hæð flæktur í rafmagnslínur.

Ástæða þess er að framdrifsbíll hennar rann á vegrið sem tengdist víravirki og framhjól bílsins hafa náð taki á vírunum, framhjólin snúist um vírana og með því spólaðist bíllinn upp í þessa hæð.

Hún þurfti að dúsa í bíl sínum eftir atvikið í tvær klukkustundir uns bílnum var náð niður. Konunni varð ekki meint af þessari athygliverðu ökuferð og hún var ekki undir áhrifum víns né lyfja.

Ökuferð hennar kemst engu að síður í metabækurnar fyrir frumleg endalok. Það er hálfgerð synd að ekki náðust lifandi myndir af þessu magnaða atviki.






×