Bílar

E-Golf með 30% aukið drægi

Finnur Thorlacius skrifar
Volkswagen e-Golf.
Volkswagen e-Golf.
Sífellt verða rafhlöðurnar í rafmagnsbílum betri og tryggja meira drægi þeirra og með hverri nýrri kynslóð komast þeir lengra á rafmagninu. Volkswagen er nú að kynna langdrægari gerð e-Golf sem komast mun 175 kílómetra á fullri hleðslu, en núverandi gerð hans kemst 135 kílómetra.

Volkswagen þurfti ekki að stækka rýmið fyrir rafhlöðurnar í bílnum, þær eru jafn stórar, en bara öflugri. Volkswagen kynnti þessa langdrægari gerð e-Golf á raftækjasýningunni Consumer Electronics Show í Bandaríkjunum fyrir stuttu og eru þessar nýju rafhlöður bílsins nú með 37 amperklukkutíma í stað 28.

Með þessar auknu drægni er e-Golf nú með sama drægi og nýjasta gerð Nissan Leaf og keppa þessir tveir bílar hatrammlega um viðskiptavinina og má vart á milli sjá hver þeirra er vinsælli. Örlítið fleiri e-Golf seldust hér á landi í fyrra en Nissan Leaf. Mun fleiri Nissan Leaf bílar eru hinsvegar á götunum hérlendis en e-Golf þar sem Leaf hefur verið lengur í sölu.






×