Bílar

BMW með metmánuð

Finnur Thorlacius skrifar
BMW X1 jepplingurinn.
BMW X1 jepplingurinn.
Þýski lúxusbílaframleiðandinn BMW hefur aldrei selt jafn marga bíla í október og nú. Salan nam 164.915 bílum og jókst um 6,3% á milli ára. Auk þess seldust 26.392 Mini bílar, en Mini er í eigu BMW. Sala Mini bíla gekk ekki eins vel og á BMW bílum í október og minnkaði um 8,5% á milli ára.

Góð sala á BMW bílum er helst að þakka góðri sölu á jepplingum og jeppum BMW, sem og á nýrri BMW 7-línu. Mikil eftirspurn er eftir nýja BMW X1 jepplingnum og einnig góð sala í BMW X3 og X5. Heildarsala BMW og Mini á árinu er 1,84 milljónir bíla og hefur vaxið um 7%. Er salan upp um 5,8% á BMW og 15% á Mini.

Mestur vöxtur hefur orðið í Evrópu, eða um 10%, en í Bandaríkjunum er hann 5,4% og 2,3% í Kína, en þar hefur heldur betur hægst á vexti í bílasölu á árinu. BMW seldi 2.553 eintök af rafmagnsbílunum i3 og i5 í október og heildarsalan á þeim á árinu er komin uppí 23.133 bíla. Nemur þessi aukning um 80% frá fyrra ári. 






×