Bílar

13 milljón króna fundarlaun

Finnur Thorlacius skrifar
Hinn stolni Lamborghini Aventador.
Hinn stolni Lamborghini Aventador. Jalopnik
Leyniþjónusta ein í New York hefur boðið þeim sem bent geta á stolinn Lamborghini Aventador bíl 100.000 dollara fundarlaun, eða ríflega 13 milljónir króna.

Honum var stolið þann 28. október síðastliðinn og eigandinn sér eðlilega eftir þessum kostagrip sem kostar gott betur en það sem fundarlaununum nemur. Bíllinn er hvítur og útlit hans afar áberandi eins og sést á myndinni hér að ofan.

Grunur leikur á að þjófurinn sé frá borginni Atlanta í Goeorgíu ríki, hvað sem veldur, og því er bæði íbúum þar og í New York bent á að hafa augun opin fyrir þessum bíl og láta leyniþjónustuna vita.

Það væri hægt að kaupa sér álitlegan bíl fyrir það eitt að geta bent á þennan stolna bíl og vonandi verður einhver svo heppinn.






×