Bílar

Hjólareinar stytta ferðatíma í bandarískum borgum

Finnur Thorlacius skrifar
Góð reynsla er af sérstökum hjólareinum í bandarískum borgum.
Góð reynsla er af sérstökum hjólareinum í bandarískum borgum.
Ólíkt því sem margir héldu hefur ferðatími fólks í þeim bandarísku borgum sem tekið hafa upp sérstakar reinar fyrir hjólafólk styst en ekki lengst.

Í New York hefur 50 kílómetrum af sérstökum reinum fyrir hjólafólk verið bætt í umferðakerfi borgarinnar og svo til allsstaðar hefur það orðið til þess að fólk kemst hraðar á milli staða og á það bæði við umferð fólks á bílum og hjólum.

Í flestum tilfellum hefur þessum sérstöku hjólareinum verið breytt frá akreinum og með því þrengt að þeim sem kjósa að komast á milli staða á bíl, en fjölgun hjólafólks hefur minnkað svo umferð akandi fólks að það kemst eftir breytinguna hraðar á milli staða.

Dæmi eru um að ferðatíminn hafi styst um 35% og víðast hvar er um styttingu ferðatíma að ræða þó svo dæmi séu einnig um að ferðatíminn hafi staðið í stað. Hvergi hefur hann þó aukist.

Slysum hjólreiðafólks hefur á sama tíma fækkað þrátt fyrir að hjólaumferð hafi aukist um 160% og er því þakkað að hjólafólk er nú mun sýnilegra en áður. 






×