Bílar

Hetjudáðir íslenskra þyrluflugmanna hjá Landhelgisgæslunni vekja athygli

Finnur Thorlacius skrifar
Á bílavefnum Jalopnik er nú greint frá magnaðri björgun íslensku Landhelgisgæslunnar þar sem veikum sjómanni af stóru flutningaskipi er bjargað í kolvitlausu veðri.

Með fréttinni fylgir  sex og hálfrar mínútna myndskeið af björguninni og sést það hér. Það vekur eðlilega athygli þeirra hjá Jalopnik hversu djarfir þyrluflugmennirnir eru sem og allir þeir sem koma að björguninni. Á meðan á henni stendur skoppar stórt flutningaskipið, sem vegur tugi þúsunda tonna, undir þyrlunum eins og korktappi á úfnum sjó Atlantshafsins.

Það eru tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar sem koma að björguninni, Super Puma vélar, og úr báðum þeirra sjást myndir af aðförunum, sem sannarlega eru djarfar og hættulegar. Djörfung íslenskra þyrluflugmanna hjá Landhelgisgæslunni er okkur Íslendingum kunn, en það yljar landanum að sjá að hún vekur einnig aðdáun um allan heim. 






×