Bílar

Fyrstu myndir af Lexus NX 300h

Finnur Thorlacius skrifar
Lexus NX 300h.
Lexus NX 300h. Lexus
Í haust er væntanlegur til landsins Lexus NX 300h, nýr sportjeppi frá Lexus sem frumsýndur verður á bílasýningunni í Peking 20. apríl. Þetta er lúxussportjeppi í millistærðarflokki  og fyrsti bíllinn sem Lexus setur á markað í þeim flokki. Lexus hefur nú birt fyrstu myndirnar af endanlegri útfærslu hans.

Hönnum bílsins hefur vakið mikla athygli en leitast er við að bíllinn líti út fyrir að hafa verið mótaður úr einu málmstykki.  Línur eru því skarpar og ákveðnar. Lexus NX 300h verður hlaðinn þeim lúxusbúnaði sem er aðalsmerki Lexus.

Kantaðar línur í Lexus NX 300h.Lexus





×