Bílar

Upplýsingakerfi í bílum alltof flókin

Finnur Thorlacius skrifar
Upplýsingakerfi í Ferrari bíl.
Upplýsingakerfi í Ferrari bíl.
Stór könnun á vegum Consumer Reports í Bandaríkjunum leiðir í ljós að bíleigendum finnst flestum þau nýju upplýsingakerfi sem í bílum þeirra eru séu alltof flókin og trauðskiljanleg.

Virðist það eiga við alla aldursflokka þó svo óánægjan aukist nokkuð við hækkun aldurs. Svo rammt kveður við að 37% þeirra bíleigenda sem eru í yngsta hópnum, mjög meðtækilegt fólk fyrir tækninýjungum, hreinlega hatar upplýsingakerfið í bílnum sínum.

Fólk á aldrinum 65 ára og eldri  virðist lítið skilja í upplýsingakerfunum því 70% þeirra eiga í miklum erfiðleikum með að nýta þau. Sú tala fellur í 52% fyrir aldurinn 45-64 ára.

Í grein Jalopnik um þessa könnun segir greinarhöfundur að hann starfi að miklu leiti við að prófa nýja bíla og eigi því að vera orðinn ansi fær að eiga við svona upplýsingakerfi, en að hann eigi oftast nær í erfiðleikum við þau og sum þeirra sé hreinræktuð vitleysa og afar illa skipulögð. Greinarhöfundur þessarar greinar er í svipuðum sporum og upplifun hans álíka. Vonandi taka bílaframleiðendur sig á hvað þetta varðar og lesa þessa könnun Consumer Reports.






×