Bílar

Hvernig má sleppa lifandi úr þessu?

Finnur Thorlacius skrifar
Ótrúlegt að sleppa án skrámu úr þessu.
Ótrúlegt að sleppa án skrámu úr þessu.
S-afríski knattspyrnumaðurinn Rooi Mahamutsa virðist fæddur undir heillastjörnu, en hann slapp úr þessu óhappi um daginn án nokkurrar skrámu. Hann var á ferð í rigningu á BMW bíl sínum og missti stjórn á honum með ekki betri afleiðingum en þessum.

Vegrið stingst gegnum allan bílinn og þræðir hann upp eins og ost á kokteilpinna. Hafa skal í huga að í S-Afríku er stýrið hægra megin í bílum eins og í Englandi og ekki hefði þurft að spyrja að leikslokum væri það vinstra megin. Hinn "listræni stjórnandi" bílsins virðist því búa í réttu landi.

Hætt er við því að það taki því ekki að gera við BMW-bíl knattspyrnumannsins, svo illa er hann leikinn. Ef til vill ekur hann hægar næst í rigningu, en það sést glögglega á myndunum að bíll hans hefur þurft að vera á miklum hraða til að búa til þessa kokteilpinnaþræðingu!

Mögnuð sjón.
Forviða áhorfendur.





×