Bílar

Risastökk og tvö "backflip“

Finnur Thorlacius skrifar
Ökumaður þessa „Monster“-jeppa hefur greinilega gaman af að skemmta áhorfendum en það gerði hann örugglega í Monster Jam Freestyle keppni sem haldin var í Las Vegas um helgina.

Hann byrjar á einu hæsta stökki sem sést hefur á slíkum bílum, en það er bara byrjunin á ógnarakstri hans. Eftirá sagði ökumaður jeppans að hann hafi einfaldlega ekið eins og vitleysingur og látið allt vaða.

Meðal annars fer hann tvö heljarstökk afturábak með því að aka að brattri hindrun og gefa í. Við það snýst bíllinn í heilhring og endar á hjólunum. Virkilega vel gert og sjaldséð. Ökuferðin endar reyndar ekki vel, eða á hvolfi og gat vart endað öðruvísi. 






×