Bílar

Toyota lokar 2 verksmiðjum í Indlandi vegna launadeilna

Finnur Thorlacius skrifar
Toyota verksmiðja í Indlandi.
Toyota verksmiðja í Indlandi.
Toyota rekur tvær bílasamsetnignaverksmiðjur rétt fyrir utan Bangalore í Indlandi. Síðustu 10 mánuði hafa viðræður staðið yfir vegna launamála starfsfólks þar og virðist mikill hiti í starfsfólki.

Það hefur orðið til þess að Toyota  sér engan kost annan en loka verksmiðjunum tímabundið þar sem yfirmenn hafa orðið fyrir tíðum hótunum frá starfsfólkinu. Í þessum tveimur verksmiðjum eru framleiddir 700 bílar á dag og þar vinna 6.400 manns.

Á Indlandi seldust 1,6% af heimsframleiðslu Toyota bíla í fyrra. Ársframleiðslan í verksmiðjunum í Indlandi eru um 220.000 bílar, sem er nokkuð meira heldur en salan í Indlandi, svo stöðvun verksmiðjanna gæti haft áhrif á sölu Toyota bíla víðar en í Indlandi.

Toyota er nýbúið að hækka lítillega laun starfsfólks síns í Japan, en sú hækkun var ekki stórvaxin, eða sem nemur um 3.000 krónum á mánuði fyrir hvern starfsmann. Engu að síður var þessi launahækkun sú mesta sem orðið hefur þar í 21 ár. 






×